Tímabundin gisting í húsnæði gömlu Hulduhlíðar
Mál 1601272 Fyrst á dagskrá 1. febrúar 2016, síðast 9. júní 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 462 liður 3
Fyrirspurn Ferðaþjónustunnar á Mjóeyri um tímabundna gistingu í húsnæði gömlu Hulduhlíðar á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að húsið verði ekki leigt út meðan unnið er að ráðstöfun húseignarinnar.
Verði eigninni ekki ráðstafað í söluferli kemur til greina að auglýsa nýtingu hússins til annarra nota.
-
Bæjarstjórn, fundur 194 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 462“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 477 liður 10
Fyrir liggur tölvupóstur frá Páli Snorrasyni framkvæmdastjóra fjármála- og rekstrarsviðs Eskju, um tímabundna leigu á húsnæði gömlu Hulduhlíðar til 1.nóvember, í tengslum við byggingu á uppsjávarfrystihúsi félagsins. Bæjarráð samþykkir að heimila leigu af húsnæðinu að því gefnu að öll tilskilin leyfi liggi fyrir og að annað gistirými á Eskifirði og nágrenni sé fullnýtt. Leigutekjur renni til viðhalds hússins. Bæjarstjóra falið að ganga frá samningi. Þá ítrekar bæjarráð að nauðsynlegt er að velferðarráðuneytið gefi skýr svör um framtíð hússins.
-
Bæjarstjórn, fundur 202 liður 2.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 477“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.