Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Fjárhagsáætlun 2015 - viðauki 6

Mál 1601146 Fyrst á dagskrá 18. janúar 2016, síðast 21. janúar 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarráð, fundur 460 liður 6

    Framlögð gögn vegna undirbúnings viðauka nr.6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Viðauki þessi tekur á tilflutningi liða innan áætlunar varðandi samþykktir bæjarráðs, endurmenntun og veikindalaun en einnig áhrif nýrra kjarasamninga á áætlunina. Bæjarráð samþykkir að víðauka nr. 6, við fjárhagsáætlun ársins 2015, verði vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 193 liður 2

    Viðauki nr.6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015, lagður fram til samþykktar. Viðauki þessi tekur á tilflutningi liða innan áætlunar varðandi samþykktir bæjarráðs, endurmenntun og veikindalaun en einnig áhrif nýrra kjarasamninga á áætlunina.

    Lesa alla bókunina (222 orð til viðbótar)

    Viðaukinn felur í sér ráðstöfun af liðnum Óráðstafað í málaflokki 21 kr. 6.925.000 á ýmsa málaflokka í samræmi við samþykktir bæjarráðs á árinu 2015. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstoðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Sömuleiðis felur viðaukinn í sér ráðstöfun af sameiginlegum kostnaði í málaflokki 21 kr. 1.163.698 á ýmsa málaflokka í samræmi við reglur um námsstyrki. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Einnig felur viðaukinn í sér ráðstöfun af sameiginlegum kostnaði í málaflokki 21 kr. 10.928.300 á ýmsa málaflokka í samræmi við reglur um langtímaveikindi starfsmanna. Ráðstöfunin hefur engin áhrif á heildarniðurstoðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2015. Að lokum hefur viðaukinn í för með sér aukinn launakostnað í flestum málaflokkum Fjarðabyggðar og stofnana að upphæð kr. 79.149.162 og hækkar fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2015 um sömu upphæð.

    Samtals eru áhrifin af auknum rekstrarkostnaði á árinu 2015 kr. 79.149.162 og mun rekstrarniðurstaða samstæðu Fjarðabyggðar lækka um sömu niðurstöðu. Jafnframt er lagt til að fjármagna aukinn rekstrarkostnað með lækkun á eigin fé samstæðu Fjarðabyggðar.

    Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um sömu upphæð eða kr. 79.149.162 til samræmis við ofangreint og verða kr. 240.630.000 í árslok 2015.

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka úr hlaði. Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Einar Már Sigurðarson. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2015 með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 193 liður 6.6

    Fundargerðin „Bæjarráð - 460“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is