Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

735 Strandgata 96 Byggingarleyfi - rífa og endurreisa viðbyggingu

Mál 1512038 Fyrst á dagskrá 11. janúar 2016, síðast 21. janúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 135 liður 2

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Péturs Sörenssonar og Gunnars Jónssonar fh. Sjóminjasafns Austurlands, dagsett 8. desember 2015, þar sem sótt er um leyfi að rífa núverandi viðbyggingu og reisa nýja samskonar í staðin ásamt því að setja nýjar hurðir á suðurhlið húss félagsins að Strandgötu 96 á Eskifirði. Teikningar eru frá AVH arkitektúr, verkfræði, hönnum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 193 liður 7.2

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 135“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is