Útleiga fasteigna til ferðamanna
Mál 1601064 Fyrst á dagskrá 11. janúar 2016, síðast 21. janúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 135 liður 6
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um fjölda fasteigna sem selja gistingu til ferðamanna í Fjarðabyggð.
Lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarfulltrúa, dagsett 11. janúar 2016 vegna skráningar gististaða í atvinnuflokk.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að eigendum húsa þar sem auglýst er sala gistingar til ferðamanna verði kynnt áform um breytta skráningu fasteigna. Jafnframt verði þessi áform auglýst.
-
Bæjarstjórn, fundur 193 liður 7.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 135“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.