Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Samstarf skóla á Austurlandi um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði

Mál 1406128 Fyrst á dagskrá 1. júlí 2014, síðast 19. nóvember 2015. 7 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Í hnotskurn

Málið fjallar um tillögu um að skólar á Austurlandi hefji samstarf um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði og að stöðugildum í kennsluráðgjöf hjá Skólaskrifstofu Austurlands verði fjölgað úr einu í tvö til að halda utan um verkefnið1. Stjórn Skólaskrifstofu Austurlands samþykkti að bæta við stöðugildi frá haustinu 20144, og í nóvember 2015 greindi fræðslustjóri frá því að verkefnið gengi vel og samkvæmt áætlun6.

Staðan

Síðasta skráða skref er að bæjarstjórn staðfesti 19. nóvember 2015 fundargerð fræðslunefndar þar sem greint var frá framvindu verkefnisins7.

Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Fræðslunefnd, fundur 1 liður 5

    Lagt var fram minnisblað fræðslustjóra Fjarðabyggðar, fræðslufulltrúa Fljótsdalshéraðs og forstöðumanns Skólaskrifstofu Austurlands, nefndin tók undir það og hvatti bæjarráð til að heimila ráðningu í viðbótarstöðugildi kennsluráðgjafa frá haustinu 2014.

    Endursögn gervigreindar

    Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra Fjarðabyggðar, fræðslufulltrúa Fljótsdalshéraðs og forstöðumanns Skólaskrifstofu Austurlands. Í minnisblaðinu er lagt til að skólar á Austurlandi hefji samstarf um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfærði. Horft er til þróunarverkefnis sveitarfélaga á Suðurnesjum um bættan námsárangur í læsi og stærðfræði, en það hefur verið að skila nemendum á Suðurnesjum umtalverðum árangri. Kennsluráðgjafar Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar hafa þar leikið lykilhlutverk. Lagt er til að Skólaskrifstofa Austurlands fái heimild til að fjölga frá og með haustinu 2014 stöðugildum í kennsluráðgjöf úr einu í tvö og henni þannig gert kleift að halda utan um verkefnið í samvinnu við skóla og fræðsluyfirvöld á Austurlandi. Með fjölgun stöðugilda í kennsluráðgjöf við Skólaskrifstofu Austurlands verði hugað að fyrrgreindu þróunarverkefni um bættan árangur í læsi og stærðfærði og jafnframt sérstaklega hugað að því að tryggja aukna ráðgjöf við leikskóla. Fræðslunefnd tekur heils hugar undir minnisblaðið og hvetur bæjarráð til að heimila fyrir sitt leyti Skólaskrifstofu Austurlands að ráða í viðbótarstöðugildi kennsluráðgjafa frá og með haustinu 2014. Jafnframt hvetur fræðslunefnd önnur sveitarfélög á Austurlandi til að gera hið sama.

  2. Bæjarráð, fundur 390 liður 5

    Bæjarráð tók jákvætt í erindið og vísaði því til skoðunar hjá bæjarstjóra í tengslum við fund í stjórn Skólaskrifstofu Austurlands.

    Endursögn gervigreindar

    Minnisblað fræðslustjóra Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs og forstöðumanns Skólaskrifstofu Austurlands, vegna hugsanlegs samstarfs skóla á Austurlandi um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði. Óskað er eftir að ráðinn verði kennsluráðgjafi við Skólaskrifstofu Austurlands frá hausti 2014. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til skoðunar hjá bæjarstjóra í tengslum við fund í stjórn Skólaskrifstofu Austurlands í næstu viku.

  3. Bæjarstjórn, fundur 160 liður 9.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 390“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Fræðslunefnd, fundur 3 liður 5

    Fram kom að stjórn Skólaskrifstofu Austurlands hefði samþykkt að bæta við stöðugildi kennslufulltrúa frá haustinu 2014, og var fræðslustjóra falið að fylgja málinu eftir í samstarfi við skólastjórnendur og starfsfólk skólaskrifstofunnar.

    Endursögn gervigreindar

    Eins og fram kemur í næsta fundarlið hér að framan samþykkti stjórn SKA að bæta við stöðugildi kennslufulltrúa hjá SKA frá og með haustinu 2014 með það að markmiði að auka námsárangur í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar. Ákvörðunin styður vel við það þróunarstarf sem unnið er að nú þegar og má þar nefna byrjendalæsi og PALS, en ekki síður mun hún hjálpa nemendum, foreldrum og starfsfólki skólanna við að nýta betur niðurstöður úr þeim mælingum sem nú þegar er verið að framkvæma í skólunum og varða árangur í læsi og stærðfræði. Fræðslustjóra er falið að fylgja málinu eftir í góðu samstarfi við skólastjórnendur og starfsfólk skólaskrifstofunnar.

  5. Bæjarstjórn, fundur 161 liður 3.5

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 3“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  6. 2015

    Fræðslunefnd, fundur 22 liður 3

    Fræðslustjóri greindi frá framvindu verkefnisins í Fjarðabyggð og sagði það ganga vel og samkvæmt áætlun.

    Endursögn gervigreindar

    Fræðslustjóri greindi frá vinnu við verkefnið bættur námsárangur á Austurlandi og framvindu verkefnisins í Fjarðabyggð. Verkefnið gegnur vel og samkvæmt áætlun.

  7. Bæjarstjórn, fundur 190 liður 5.3

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 22“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is