Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 160

21. ágúst 2014, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, varamaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, varamaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Flúormælingar 2014

    Mál 1407100 Allur ferill málsins

    Að loknum fundi með fulltrúum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar telur eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd (ESU) ljóst, miðað við þær upplýsingar sem fyrir liggja, að almenningi stafar ekki hætta af flúorlosun frá Alcoa Fjarðaáli í Reyðarfirði. Stakar flúormælingar fela af margvíslegum ástæðum í sér afar takmarkað upplýsingagildi og mynda langtímamælingar af þessum sökum þann viðmiðunarkvarða sem gæta verður að í þessu sambandi. Mælingar hafa staðið óslitið yfir frá því að álverið í Reyðarfirði hóf starfsemi og er ekkert í þeim niðurstöðum sem bendir til þess að íbúum sé hætt vegna flúorlosunar álversins. ESU leggur þunga áherslu á mikilvægi þess fylgst sé af kostgæfni með mögulegum hættum sem íbúum og umhverfi kann að stafa af losun lofttegunda frá umræddri starfsemi. Á það ekki einungis við um sjálfar mælingarnar og úrvinnslu þeirra heldur einnig upplýsingamiðlun til almennings. Nefndin leggur ekki síður þunga áherslu á, að Alcoa Fjarðaál framfylgi áfram, sem hingað til, ýtrustu varúðarreglum gagnvart mögulegum umhverfisáhrifum og aðgæti með reglubundnum hætti hvort ástæða sé til að herða slíkar reglur enn frekar eða framkvæmd þeirra. Í ljósi þess að fréttaflutningur af flúormælingum í Reyðarfirði hefur ítrekað og að nauðsynjalausu vakið áhyggjur hjá íbúum í Fjarðabyggð af heilsufarslegu öryggi, beinir ESU því til bæjarstjórnar að hlutlægar upplýsingar verði gerðar aðgengilegar íbúum á vef sveitarfélagsins, í samstarfi við fagaðila og fræðimenn s.s. hjá Náttúrustofu Austurlands, Umhverfisstofnun, Matvælastofnun og háskólasamfélaginu. Sú staða er ekki ásættanleg fyrir Fjarðabúa að þeir telji ástæðu til að vantreysta áhrifum nánasta umhverfis á líf sitt og heilsu, eigi það ekki við full rök að styðjast. ESU leggur einnig til við yfirstjórn Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar, að kannað verði hvort leggja þurfi, í samskiptum þessara stofnana við fjölmiðla, aukna áherslu á faglega og gagnsæja miðlun upplýsinga til almennings.

    Til máls um bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tóku Esther Ösp Gunnarsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason og Elvar Jónsson.

    Bæjarstjórn tekur undir bókun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.ágúst sl. og samþykkir að komið verði upp upplýsingatorgi á heimasíðu sveitarfélagsins, þar sem íbúar geti nálgast upplýsingar um flúormælingar í Reyðarfirði í samstarfi við fagaðila og fræðimenn. Þá verði farið ítarlega yfir alla þætti málsins á opnum íbúafundi á Reyðarfirði þann 9.september nk.

    Bókun samþykkt með 8 atkvæðum. Esther Ösp situr hjá við afgreiðslu á bókun nefndarinnar.

  2. 2. Fjárhagsáætlun 2014 - Kjarasamningar - viðauki 7

    Mál 1408060 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðaukanum úr hlaði en um er að ræða viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2014, vegna metinna áhrifa kjarasamninga og annarra launabreytinga. Lagt er til að gerð verði breyting á rekstrarkostnaði Fjarðabyggðar og stofnana á árinu 2014 í samræmi við vænt áhrif launakostnaðar í ljósi nýrra kjarasamninga og annarra breytinga m.a. nýju starfsmati. Áætlun ársins 2014 með samþykktum viðaukum gerði ráð fyrir að heildar launaútgjöld ársins 2014 yrðu kr. 2.222.654.992 en með ofangreindum breytingum verða áætluð launaútgjöld ársins 2014 kr. 2.342.153.586. Breytingin nemur kr. 119.498.594 og skiptist þannig að kr. 112.911.998 er vegna breytinga í rekstri aðalsjóðs, kr. 4.586.523 vegna breytinga í rekstri hafnarsjóðs, kr. 462.904 vegna breytinga í rekstri hitaveitu, kr. 633.689 vegna breytinga í rekstri fráveitu, kr. 699.423 vegna breytinga í rekstri vatnsveitu og kr. 204.057 vegna breytinga í rekstri sorpsamlags. Lagt er til að þessi útgjaldaaukning verði fjármögnuð af eigin fé aðalsjóðs og stofnana. Handbært fé aðalsjóðs mun lækka um kr. 119.498.594 og verða áætlað kr. 276.615.406 í árslok 2014.

    Viðauki lagður fram og samþykktur með 9 atkvæðum.

  3. 3. Bæjarráð - 393

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 393 frá 18.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Lenging ferðamannatímabils í Fjarðabyggð1306022
    2. 3.2 Akstur starfsmanna til og frá vinnu - Trúnaðarmál1408051
    3. 3.3 Reglur um niðurgreiðslu ferða starfsmanna með skipulögðum samgöngum.1310045
    4. 3.4 Aðalfundur SSA 20141406100
    5. 3.5 Götuljós við skólamannvirki1406134
    6. 3.6 Fjárhagsáætlun 2014 - Kjarasamningar - viðauki 71408060
    7. 3.7 Ósk um afslátt af gatnagerðargjöldum við Naustahvamm 601407039
    8. 3.8 Löggæslumálefni, framkvæmdavald og stjórnsýsla ríkisins í héraði1408052
    9. 3.9 Sýning borkjarna teknum í Áreyjum1408049
    10. 3.10 740 Nesgata 14 - Byggingarleyfi - Leikskóli1407077
    11. 3.11 Fundargerðir félagsmálanefndar 20141401186
    12. 3.12 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 981408004F
    13. 3.13 Fræðslunefnd - 21408003F
  4. 4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 98

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 98 frá 11.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  5. 5. Fræðslunefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Til máls tók Elvar Jónsson.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 2 frá 12.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

    1. 5.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20151407033
    2. 5.2 Starfsáætlun 2015 - fræðslumál1408014
    3. 5.3 Yfirlit yfir stöðu fræðslumála á miðju ári 20141408020
    4. 5.4 Undirbúningur að stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum1408021
    5. 5.5 Niðurstöður úr Skólavoginni1311034
  6. 6. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014

    Mál 1401186 Allur ferill málsins

    Til máls tók Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 56 frá 11.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

  7. 7. Bæjarráð - 392

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 392 frá 11. ágúst 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.

    1. 7.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20151407033
    2. 7.2 Kjarasamningar 20141404108
    3. 7.3 Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL1403072
    4. 7.4 740 Sæbakki 25 - byggingarlóð1406040
    5. 7.5 Breytingar í Stöðvarfjarðarskóla1407075
    6. 7.6 Forkaupsréttur að húsi í Neskaupstað1407093
    7. 7.7 Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi1309129
    8. 7.8 Umfang sjávarútvegs á Austfjörðum - skýrsla unnin fyrir Austurbrú í júlí 20141408013
    9. 7.9 ONS 2014 ráðstefna Stavanger1407091
    10. 7.10 Franskir Dagar og Íslandshátíð í Gravelines 20141407019
    11. 7.11 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 20151408022
  8. 8. Bæjarráð - 391

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 391 frá 25. júlí 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.

    1. 8.1 740 - Deiliskipulag Miðbær Norðfjarðar1302169
    2. 8.2 Sjókvíaeldi í Reyðarfirði1103025
    3. 8.3 Umsögn um 24.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði.1407037
    4. 8.4 Geymslusvæði fyrir gáma í Fjarðabyggð1402076
    5. 8.5 Mjóifjörður - Endurnýjun þekju1402032
    6. 8.6 Breytingar í Stöðvarfjarðarskóla1407075
    7. 8.7 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20151407033
    8. 8.8 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá1406056
    9. 8.9 Gjaldskrá rafveitu Fjarðabyggðar 20141310056
    10. 8.10 Ósk um afslátt af gatnagerðargjöldum við Naustahvamm 601407039
    11. 8.11 Upplýsingatæknimál grunnskóla, uppfærsla Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði1405123
    12. 8.12 Ný lög um opinber skjalasöfn1407054
    13. 8.13 Málþing sveitarfélaga um þjónustu við nýja íbúa af erlendum uppruna 14.nóvemeber 2014 og ósk um tengilið1407068
    14. 8.14 Umsókn Parkinsonssamtakanna um styrk til að halda félagsfund í heimabyggð1407071
    15. 8.15 Ályktanir 9.fundar sveitarstjórnarvettvangs EFTA um loftslags- og orkumál og málefni norðurslóða1407058
    16. 8.16 Aðalfundur Veiðifélags Dalsárs 16. júlí 20141407015
    17. 8.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 971407005F
    18. 8.18 Hafnarstjórn - 1341407006F
  9. 9. Bæjarráð - 390

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 390 frá 4. júlí 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.

    1. 9.1 Beiðni um samstarf umbætta aðstöðu við íþróttahúsið á Fáskrúðsfirði1407002
    2. 9.2 Starfshópur um stefnumörkun fyrir Skíðamiðstöð Austurlands í Oddsskarði1401049
    3. 9.3 Starfsleyfi fyrir Samskip að Hafnargötu 51406159
    4. 9.4 Greinagerð um tekjur áætlunarbíls milli Norðfjarðar og Egilsstaða - Trúnaðarmál1403143
    5. 9.5 Samstarf skóla á Austurlandi um bættan námsárangur nemenda í læsi og stærðfræði1406128
    6. 9.6 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20141402024
    7. 9.7 730 Óseyri 3 - umsókn um lóð1406151
    8. 9.8 730 Stekkjarbrekka 15 - byggingarleyfi - bílskúr1406146
    9. 9.9 Verkefnastjóri í atvinnumálum í Fjarðabyggð1310127
    10. 9.10 Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 61407014
    11. 9.11 Rekstur málaflokka 2014 - TRÚNAÐARMÁL1403072
    12. 9.12 Skipulag og staðsetning gáma til bráðabirgða á lóð Launafls1407020
    13. 9.13 Umsókn Salthússmarkaðarins á Stöðvarfirði um styrk vegna gerð bæklings1406092
    14. 9.14 730 - br. á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna br. á landnotkun við Eyri í Reyðarfirði1401245
    15. 9.15 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20141402090
    16. 9.16 Fundargerðir félagsmálanefndar 20141401186
    17. 9.17 Fræðslunefnd - 11406013F
    18. 9.18 Íþrótta- og tómstundanefnd - 11406012F
    19. 9.19 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 961406010F
    20. 9.20 Hafnarstjórn - 1331406011F
    21. 9.21 Meningar- og safnanefnd - 11407001F
  10. 10. Bæjarráð - 389

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð bæjarráðs, frá nr. 389 frá 30. júní 2014, lögð fram til umræðu og kynningar.

    1. 10.1 Mögulegt ólögmæti lána LS frá 20061207007
    2. 10.2 Endurgreiðsla á VSK fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar1101028
    3. 10.3 Krafa slökkviliðsmanna um greiðslu vangoldinna launa1306112
    4. 10.4 Greiðslur af skuldabréfi útg. 21.2.1998 nr. 136361402118
    5. 10.5 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2014 - 20181406004
    6. 10.6 Samþykktir Atvinnuþróunarsjóðs og framlag 20141311010
    7. 10.7 OECD - nýsköpun í opinberum rekstri - Observatory of Public Sector Innovation1406133
    8. 10.8 Dreifikerfi Landsnets - Orkuflutningar1406156
    9. 10.9 Lenging ferðamannatímabils í Fjarðabyggð1306022