Bæjarráð, fundur 393
18. ágúst 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 3
Til máls tóku Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs nr. 393 frá 18.ágúst 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lenging ferðamannatímabils í Fjarðabyggð
Mál 1306022 Allur ferill málsins
Díana Mjöll Sveinsdóttir frá Tanna Travel sat þennan lið fundarins. Rætt um opnunartíma safna og sundlauga. Að sögn Díönu hefur móttaka skemmtiferðaskipa gengið vel, heilt yfir í sumar, en vissulega ýmislegt sem má bæta. Díana kallar m.a. eftir stefnu Fjarðabyggðar í tengslum við lengingu ferðamannatímabilsins og leggur til að sumarið 2014 verði greint og hvernig til tókst. Rætt um markaðssetningu Fjarðabyggðar og hlutverk sveitarfélagsins í þjónustu við ferðamannaiðnaðinn.
-
2. Akstur starfsmanna til og frá vinnu - Trúnaðarmál
Mál 1408051 Allur ferill málsins
Bæjarritara falið að fara yfir málið og svara bréfritara.
-
3. Reglur um niðurgreiðslu ferða starfsmanna með skipulögðum samgöngum.
Mál 1310045 Allur ferill málsins
Framlögð drög að reglum um afnot starfsmanna Fjarðabyggðar að skipulögðum samgöngum, ásamt greinargerð. Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti, en felur bæjarstjóra að fara yfir útfærslu þeirra áður en þær verði lagðar fram til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
4. Aðalfundur SSA 2014
Mál 1406100 Allur ferill málsins
Aðalfundur SSA verður haldinn á Vopnafirði dagana 19. og 20. september nk. Stjórn SSA vinnur að undirbúningi fundarins. Af því tilefni er óskað eftir ábendingum/tillögum að efni/ályktunum sem lagðar verða fyrir nefndir fundarins til afgreiðslu. Tillögur/ályktanir þurfa að berast fyrir 30. ágúst nk.
-
5. Götuljós við skólamannvirki
Mál 1406134 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað mannvirkjastjóra, dagsett 15. júlí, um uppsetningu götuljósa við skólamannvirki. Kostnaður við hvert götuljós er um 6 milljónir. Vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2015.
-
6. Fjárhagsáætlun 2014 - Kjarasamningar - viðauki 7
Mál 1408060 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki 7, kr. 119.498.594.- við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana, vegna metinna áhrifa kjarasamninga og annarra launabreytinga á fjárhagsáætlun ársins 2014. Bæjarráð samþykkir viðauka 7 og vísar honum til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
7. Ósk um afslátt af gatnagerðargjöldum við Naustahvamm 60
Mál 1407039 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni Tandrabergs frá 3.júlí er varðar afslátt af gatnagerðargjöldum vegna lóðar í Neskaupstað. Minnisblað bæjarritara og mannvirkjastjóra lagt fram. Ekki eru fordæmi fyrir veitingu afsláttar af gatnagerðargjöldum og bæjarráð hafnar því beiðni þar um. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði og felur bæjarritara að svara bréfritara.
-
8. Löggæslumálefni, framkvæmdavald og stjórnsýsla ríkisins í héraði
Mál 1408052 Allur ferill málsins
Staða og framtíðarþjónusta löggæslu og sýslumanns í Fjarðabyggð. Bæjarráð óskar eftir að Sýslumaðurinn á Eskifirði, og verðandi lögreglustjóri, komi á fund bæjarráðs.
-
9. Sýning borkjarna teknum í Áreyjum
Mál 1408049 Allur ferill málsins
Umræða um borkjarna sem tekinn var í Áreyjum 1978.
-
10. 740 Nesgata 14 - Byggingarleyfi - Leikskóli
Mál 1407077 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfis- og lóðarumsókn Guðmundar Elíassonar f.h framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar, dagsett 22. júlí 2014, vegna byggingar 1.424,3 m2 og 4.906,3 m3 leikskóla við Nesgötu 14 á Norðfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt lóðarúthlutunina fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar. Bæjarráð áætlar að tilboðsgögn verði tilbúin í september.
-
11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2014
Mál 1401186 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 56 frá 11. ágúst 2014, lögð fram til kynningar.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 98
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 98 frá 11.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.
-
13. Fræðslunefnd - 2
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 2 frá 12.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.