Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 394

1. september 2014, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 161 liður 1

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O. Hermannsson, Einar Már Sigurðarson, Kristín Gestsdóttir og Hjördís Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 394 frá 1.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Árshlutareikningur Fjarðabyggðar 30.6. 2014 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1408102 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Framlögð drög að árshlutareikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir fyrir tímabilið janúar - júní 2014 ásamt samantekt fjármálastjóra. Drögin eru lögð fram sem trúnaðarmál.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Drög að tekju- og gjaldaforsendum fjárhagsramma 2015 lögð fram til umræðu. Fjárhagsrömmum verður úthlutað á næsta fundi.

  3. 3. Mögulegt ólögmæti lána Lánasjóðs sveitarfélaga frá 2006

    Mál 1207007 Allur ferill málsins

    Bæjarráð felur bæjarstjóra, í samráði við lögmann sveitarfélagsins, að vinna áfram að málinu.

  4. 4. Hjólabrettaaðstaða á Norðfirði

    Mál 1407048 Allur ferill málsins

    Bréf áhugafólks um hjólabrettaaðstöðu í Neskaupstað og minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa. Bæjarráð tekur jákvætt í tillögu íþrótta- og tómstundafulltrúa og vísar málinu til fjárhags- og framkvæmdaáætlunar 2015.

  5. 5. Krafa slökkviliðsmanna um greiðslu vangoldinna launa

    Mál 1306112 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Hæstaréttar vegna framlagðrar beiðni og áfrýjunar Gísla Þór Briem til Hæstaréttar vegna dóms Héraðsdóms um ágreining um greiðslu þrekálags.

    Lagt fram til kynningar.

  6. 6. Forkaupsréttur að húsi í Neskaupstað

    Mál 1407093 Allur ferill málsins

    Bæjarráð óskaði eftir afstöðu eigna- skipulags- og umhverfisnefnd til þess hvort eignarhlutar Egilsbrautar 7 verði áfram á forkaupsréttarlista.

    Nefndin telur rétt að taka húsið af forkaupslista með tilliti til framlagðra tillagna um deiliskipulag miðbæjar Norðfjarðar. Lagt fram til kynningar og vísað til endurskoðunar forkaupslista 2015.

  7. 7. Lausaganga stórgripa

    Mál 1403118 Allur ferill málsins

    Landbúnaðarnefnd hefur samþykkt drög að samþykkt um bann við lausagöngu stórgripa. Samþykkt hefur verið vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til samþykktar og að því loknu til afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráð óskar eftir við eigna- skipulags- og umhverfisnefnd að fá að skoða málið frekar.

  8. 8. Stjórnarfundir Skólaskrifstofu Austurlands 2014

    Mál 1403055 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar, frá 18.ágúst 2014, lögð fram til kynningar. Bæjarráð vísar 3.lið í fundargerð Skólaskrifstofu, ráðningu kennsluráðgjafa, til umræðu í fræðslunefnd í tengslum við fjárhagsáætlun 2015.

  9. 9. Almenningsopnun í sundlaug Reyðarfjarðar

    Mál 1408119 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um opnun sundlaugarinnar á Reyðarfirði fyrir almenning í tvo daga í viku í september, á meðan á skólasundi stendur. Bæjarráð áréttar að tillögur nefndar að þjónustubreytingum þurfa samþykki bæjarrráðs og bæjarstjórnar, áður en þeim er hrint í framkvæmd. Bæjarráð felur íþrótta- og tómstundanefnd að finna fjármagn fyrir aukinni opnun í september innan fjárhagsramma ársins. Bæjarráð óskar jafnframt eftir við fræðslunefnd, við gerð starfsáætlunar 2015, að ræddir verði kostir og gallar þess að framkvæmd skólasunds grunnskólabarna á Reyðarfirði fari fram í sundlaug Eskifjarðar.

  10. 10. 735 Ofanflóðvarnir í Bleiksá

    Mál 1311189 Allur ferill málsins

    Lagður fram samningur Héraðsverks og Fjarðabyggðar vegna ofanflóðavarna við Bleiksá á Eskifirði. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt samning fyrir sitt leyti. Bæjarráð staðfestir samning og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  11. 11. Tillaga starfsháttanefndar um endurskipulagningu Austurbrúar 2014

    Mál 1409001 Allur ferill málsins

    Drög að tillögu starfsháttanefndar um breytingar á stjórnskipulagi og starfsemi Austurbrúar. Drögin eru send til umsagnar og athugasemda en frestur til að skila umsögnum eða athugasemdum er til 5. september nk. Bæjarráð óskar eftir fresti til athugasemda til 8.september og vísar málinu til umfjöllunar á næsta fundi.

  12. 12. Starfsleyfi fyrir Samskip að Hafnargötu 5

    Mál 1406159 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt að hefja vinnu við breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Reyðarfjarðar og deiliskipulagi fiskihafnar Reyðarfjarðar til samræmis við aðalskipulag. Lagt fram til kynningar.

  13. 13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 99

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 99 frá 25.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.

  14. 14. Íþrótta- og tómstundanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar, nr. 2 frá 27.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.

    1. 14.7 Hreyfivika - Move week
  15. 15. Menningar- og safnanefnd - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og safnanefndar, nr. 2 frá 28.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.

    1. 15.1 Eistnaflug 2014
  16. 16. Fræðslunefnd - 3

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 3 frá 26.ágúst 2014, lögð fram til kynningar.