Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 395

8. september 2014, kl. 08:30 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Helga Guðrún Jónasdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 162 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 395 og 396 teknar saman til afgreiðslu.

    Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson og Einar Már Sigurðarson.

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 395 frá 8.september 2014, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Málefni Austurbrúar

    Mál 1404114 Allur ferill málsins

    Bæjarrráð ræddi málefni Austurbrúar. Jóna Árný Þórðardóttir starfandi framkvæmdastjóri Austurbrúar sat þennan lið fundarins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að fara yfir hugsanlega verkefni milli sveitarfélagsins og Austurbrúar.

  2. 2. Tillaga starfsháttanefndar um endurskipulagningu Austurbrúar 2014

    Mál 1409001 Allur ferill málsins

    Farið yfir tillögur starfsháttanefndar Austurbrúar yfir endurskipulagningu stoðstofnunarinnar. Markaðs- og upplýsingafulltrúa falið að koma athugsemdum bæjarráðs á framfæri í dag við nefndina.

  3. 3. Þjónusta við olíuleit á Drekasvæði - kynningarmál

    Mál 1210103 Allur ferill málsins

    Ásta Kristín greindi bæjarráði frá stöðu og framgangi verkefnisins. Bæjarráð samþykkir að fela verkefnastjóra að sækja um aðild f.h. Fjarðabyggðar að Viðskiptaráði Norðurslóða og Norðurslóðaneti Íslands.Þá greindi verkefnastjóri frá því að samstarfshópur Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs um verkefnið frá 2012 hafi verið virkjaður á ný því til stuðnings.

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2015

    Mál 1407033 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Tillögur að fjárhagsrömmum málaflokka fyrir árið 2015 lagðir fram. Bæjarráð felur bæjarrstjóra að vísa fjárhagsrömmum til nefnda og sviða án breytinga á almennum rekstrarkostnaði milli ára. Bæjarráða áskilur sér rétt á breytingum á fjárhagsrömmum meðan á umræðu um fjárhagsáætlun stendur.

  5. 5. Árshátíð Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1309061 Allur ferill málsins

    Árshátíð starfsmanna sveitarfélagsins verður með svipuðu sniði og á síðasta ári. Formlegt félag hefur verið stofnað, Skemmtifélag starfsmanna Fjarðarbyggar, SSF sem sér um framkvæmd. Bæjarráð samþykkir sama framlag til árshátíðar starfsmanna 2014 og á síðasta ári eða kr. 4 millj. Bæjarráð gerir ráð fyrir, að félagið verði í stakk búið til að standa straum af almennum skemmtunum þ.m.t árshátíð á vegum þess frá og með næsta ári. Framlag sveitarfélagsins til SSF fyrir árið 2015 verður ákveðið í fjárhagsáætlun.

  6. 6. Sýning borkjarna teknum í Áreyjum

    Mál 1408049 Allur ferill málsins

    Bréf Vigfúsar Ólafssonar er varðar sýningu borkjarna er tekinn var í Áreyjum 1978. Bæjarráð vísar erindinu til menningar-og safnanefndar til frekari umfjöllunar.

  7. 7. Tillögur Mannvirkjastofnunar að reglugerð um starfsemi slökkviliða

    Mál 1409026 Allur ferill málsins

    Ósk auðlinda- og umhverfisráðuneytisins um umsögn vegna reglugerðar um starfsemi slökkviliða. Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og slökkviliðsstjóra til umsagnar og álitsgjafar.

  8. 8. Ályktun um varðveislu landbúnaðarlands

    Mál 1409029 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísar samþykktinni til landbúnaðarnefndar.

  9. 9. Ársreikningur 2013

    Mál 1409004 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir ársreikning Búseta fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra að undirrita hann.

  10. 10. Hafnarstjórn - 135

    Fundargerðin í heild

    1. 10.1 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 20151408022
    2. 10.2 Aðalfundur Cruise Iceland á Ísafirði 23. maí 20141402067
    3. 10.3 Aðalfundur Fiskmarkaður Austurlands 20141408116
    4. 10.4 Fundargerðir CI á árinu 20141401230
    5. 10.5 Umfang sjávarútvegs á Austfjörðum - skýrsla unnin fyrir Austurbrú í júlí 20141408013
    6. 10.6 Vaktskúr við olíuafgreiðslu á Eskifirði1408093
    7. 10.7 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20151407033
  11. 11. Tillaga að breytingum á gjaldskrá safna í Fjarðabyggð fyrir árið 2015

    Mál 1407016 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingum á gjaldskrá safna í Fjarðabyggð fyrir árið 2015. Eydís Ásbjörnsdóttir gerir athugasemd við að aldursmörk tillögunnar miðast við 16 ára aldur en ekki 18 ára sjálfræðisaldur.

  12. 12. Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2014

    Mál 1310045 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri hefur frá síðasta fundið farið yfir útfærslur. Bæjarráðs samþykkir gjaldskrá og reglur skipulagðra samganga 2014 og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.