Gjaldskrá og reglur vegna skipulagðra samgangna 2014
Mál 1310045 Fyrst á dagskrá 14. október 2013, síðast 22. janúar 2015. 15 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárSkipulag
Í hnotskurn
Málið snýst um gjaldskrá almenningssamgangna í Fjarðabyggð árið 2014, sem ákveðið var að halda óbreyttri, og reglur um að sveitarfélagið greiði fyrir ferðir starfsmanna til og frá vinnu með skipulögðum samgöngum15. Reglurnar voru samþykktar í bæjarstjórn í september 2014 og bæjarráð ákvað síðar að þær yrðu endurskoðaðar fyrir 1. október 20151214.
Staðan
Bæjarráð samþykkti að reglur um niðurgreiðslu ferða starfsmanna yrðu endurskoðaðar fyrir 1. október 2015 og bæjarstjórn afgreiddi þá fundargerð 22. janúar 20151415.
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 360 liður 19
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
Bæjarráð samþykkti tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að gjaldskrá skipulagðra samgangna yrði óbreytt árið 2014 og vísaði henni til fjárhagsáætlunargerðar
Endursögn gervigreindar
Frá fundi eigna- skipulags- og umhverfisnefndar 10.október.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu mannvirkjastjóra um að gjaldskrá verði óbreytt árið 2014 og vísar henni til umræðu og afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 4.19
Fundargerðin „Bæjarráð - 360“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
-
2014
Bæjarráð, fundur 372 liður 3
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
Bæjarráð tók málið aftur fyrir eftir að bæjarstjórn hafði vísað því til frekari skoðunar, fól bæjarstjóra að láta vinna greinargerð um stöðu skipulagðra samgangna, og jafnframt var lögð fram til umræðu tillaga um endurgjaldslaus afnot eða afslætti fyrir starfsmenn Fjarðabyggðar
Endursögn gervigreindar
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 17. október 2013 að vísa gjaldskrá skipulagðra almenningssamgangna til frekari skoðunar í bæjarráði.
Lesa alla bókunina (147 orð til viðbótar)
Um leið og bæjarstjórn Fjarðabyggðar staðfestir þá ákvörðun bæjarráðs að halda gjaldskrá almenningssamgangna óbreyttri milli ára þá árétta bæjarfulltrúar að framtíðarsýnin sé sú að Fjarðabyggð sé eitt gjaldsvæði. Mikilvægt er nú að skjóta styrkum stoðum undir almenningssamgöngur í Fjarðabyggð og gera þær fjölbreyttari en um leið halda áfram vinnu á næsta ári við að tryggja fjárhagslegan grundvöll þeirra með það að leiðarljósi að jafna út fargjöld innan Fjarðabyggðar. Því felur bæjarstjórn bæjarráði að vinna áfram að málinu nú í vetur og fara yfir alla þætti almenningssamgangna innan Fjarðabyggðar og skila bæjarstjórn greinagerð um stöðu þeirra fyrir 1.febrúar nk. Þá mun bæjarstjórn meta málið að nýju á grundvelli þeirrar greinagerðar. Jafnframt lögð fram til umræðu tillaga um endurgjaldslaus afnot eða afslætti til starfsmann Fjarðabyggðar vegna skipulagðra samgangna.
Bæjarstjóra falið að láta vinna greinargerð um almenna stöðu skipulagðra samgangna, nýtingu einstaklinga og fyrirtækja á ferðum, fjárhagslegri stöðu þeirra ofl.
-
Bæjarstjórn, fundur 149 liður 1.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 372“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
-
Bæjarráð, fundur 379 liður 2
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
Bæjarráð samþykkti að sveitarfélagið greiddi frá 1. september 2014 fyrir ferðir starfsmanna til og frá vinnu með skipulögðum samgöngum SvAust, til að jafna ferðakostnað óháð búsetu, og fól bæjarritara að útfæra málið og leggja fram reglur
Endursögn gervigreindar
Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra vegna afnota starfsmanna af almenningssamgöngum ásamt minnisblaði um kostnað vegna ferða. Bæjarráð samþykkir að sveitarfélagið muni greiða fyrir afnot starfsmanna Fjarðabyggðar með skipulögðum samgöngum SvAust, vegna ferða til og frá vinnu, frá 1.september nk., til að jafna ferðakostnað starfsmanna óháð búsetu. Bæjarritara falin nánari útfærsla málsins og leggja fram reglur. Málinu jafnframt vísað til fjárhagsáætlunargerðar 2015. Horft verði til áframhaldandi vinnu við almenningssamgöngur við útfærslu reglna.
-
Bæjarstjórn, fundur 153 liður 3.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 379“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
-
Bæjarráð, fundur 385 liður 8
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
Fulltrúar B- og D-lista í bæjarráði samþykktu með 2 atkvæðum að vísa tillögu Fjarðalistans um að gera Fjarðabyggð að einu gjaldsvæði til fjárhagsáætlunargerðar, en Eydís ítrekaði afstöðu Fjarðalistans og sat hjá
Endursögn gervigreindar
Tillögur frá 154. fundi bæjarstjórnar vísað til bæjarráðs.
Tillaga Fjarðalistans: "Fjarðabyggð verði gert að einu gjaldsvæði fyrir notendur almenningssamgangna, svo allir greiði sömu upphæð fyrir ferðir innan Fjarðabyggðar óháð áfangastað, áður en vetraráætlun tekur gildi í haust." Bæjarstjórn samþykkti að vísa tillögu Fjarðalistans til næsta fundar í bæjarráði.
Fram lögð tillaga sem staðfest er með 2 atkvæðum.
Fulltrúar B og D lista í bæjarráði samþykkja að vísa tillögu Fjarðalistans til fjárhagsáætlunargerðar á hausti komanda. Er það í takt við vinnu bæjarráðs vegna almenningssamgangna líkt og samþykkt var á 379 fundi þess enda verið að safna saman upplýsingum um kerfið í ljósi reynslunnar sem komið er á það nú.
Eydís ítrekar afstöðu Fjarðalistans um málið og situr hjá.
-
Bæjarstjórn, fundur 156 liður 1.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 385“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Gjaldskrá skipulagðra samgangna 2014
-
Bæjarráð, fundur 393 liður 3
Reglur um niðurgreiðslu ferða starfsmanna með skipulögðum samgöngum.
Bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti drög að reglum um afnot starfsmanna af skipulögðum samgöngum og fól bæjarstjóra að fara yfir útfærslu þeirra áður en þær færu til bæjarstjórnar
Endursögn gervigreindar
Framlögð drög að reglum um afnot starfsmanna Fjarðabyggðar að skipulögðum samgöngum, ásamt greinargerð. Bæjarráð samþykkir reglur fyrir sitt leyti, en felur bæjarstjóra að fara yfir útfærslu þeirra áður en þær verði lagðar fram til endanlegrar samþykktar í bæjarstjórn.
-
Bæjarstjórn, fundur 160 liður 3.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 393“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Reglur um niðurgreiðslu ferða starfsmanna með skipulögðum samgöngum.
-
Bæjarráð, fundur 395 liður 12
Eftir yfirferð bæjarstjóra á útfærslum samþykkti bæjarráð gjaldskrá og reglur skipulagðra samgangna 2014 og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar
Endursögn gervigreindar
Bæjarstjóri hefur frá síðasta fundið farið yfir útfærslur. Bæjarráðs samþykkir gjaldskrá og reglur skipulagðra samganga 2014 og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 162 liður 1
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum um niðurgreiðslu ferða starfsmanna úr hlaði og voru þær samþykktar með 9 atkvæðum
Endursögn gervigreindar
Reglur vegna niðurgreiðslu á ferðum starfsmanna með skipulögðum samgöngum vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Reglur samþykktar með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 162 liður 3.12
Fundargerðin „Bæjarráð - 395“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2015
Bæjarráð, fundur 412 liður 6
Bæjarráð ræddi reglurnar, sem höfðu verið í gildi í þrjá mánuði, og samþykkti að þær yrðu endurskoðaðar fyrir 1. október 2015
Endursögn gervigreindar
Tekin umræða um reglur um niðurgreiðslu á ferðum starfsmanna með skipulögðum samgöngum.
Reglurnar voru samþykktar 18. september 2014 og hafa verið í gildi í þrjá mánuði. Ætlunin var að taka þær til endurskoðunar fyrir árslok 2014.
Bæjarráð samþykkir að reglurnar verði endurskoðaðar þegar ár er liðið frá því þær tóku gildi eða fyrir 1. október 2015.
-
Bæjarstjórn, fundur 171 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 412“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.