Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 141

17. október 2013, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Eiður Ragnarsson, varamaður
  • Stefán Már Guðmundsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 357

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Eiður Ragnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. september staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Atvinnu- og menningarnefnd1309033
    2. 1.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd1212086
    3. 1.3 44. mál til umsagnar frá atvinnuveganefnd Alþingis1309140
    4. 1.4 740 Blómsturvellir 41 - Hlaða1205104
    5. 1.5 Ársfundur Starfsendurhæfing Austurlands 20131309143
    6. 1.6 Erindi frá innanríkisráðuneyti vegna lögfestingar Barnasáttmála og fræðsluþinga um ofbeldi gegn börnum1309154
    7. 1.7 Fyrirspurn vegna lögheimilisskráningar starfsmanna Suðurverks er vinna við Norðfjarðargöng1309164
    8. 1.8 Rekstur Egilsbúðar1012090
    9. 1.9 Samningar sveitarfélaga og Fjölís - staða mála1309151
    10. 1.10 Vaxtasamningur - Tillögur að styrkbærum verkefnum 20131302104
    11. 1.11 Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 20131309169
    12. 1.12 Kaup á eignum Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf1309174
    13. 1.13 Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða1304098
    14. 1.14 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20131301075
    15. 1.15 Atvinnu- og menningarnefnd - 491309013F
    16. 1.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 731309011F
    17. 1.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 741309015F
    18. 1.18 Fræðslu- og frístundanefnd - 441309012F
  2. 2. Bæjarráð - 358

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 1. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Fræðslu- og frístundanefnd1309034
    2. 2.2 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20141308088
  3. 3. Bæjarráð - 359

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    2. 3.2 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð1309036
    3. 3.3 Aukafjárveiting vegna framkvæmda í Breiðablik.1309160
    4. 3.4 Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 41310073
    5. 3.5 Boð á 1. fund Hringborðs Norðurslóða 12.-14. október í Reykjavík1309127
    6. 3.6 Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 20131303098
    7. 3.7 Umsókn um styrk vegna starfsemi samtakanna Landsbyggðin lifi1310039
    8. 3.8 Fundur með stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga1310066
    9. 3.9 Hafnarstjórn - 1221309017F
  4. 4. Bæjarráð - 360

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 14. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    2. 4.2 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014 og gjaldskrá 20141308088
    3. 4.3 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Atvinnu- og menningarnefnd.1309033
    4. 4.4 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd1212086
    5. 4.5 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Fræðslu- og frístundanefnd1309034
    6. 4.6 Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Félagsmálanefnd1309032
    7. 4.7 Fjárfestingar í Vatnsveitu Fjarðabyggðar 20131310075
    8. 4.8 Gjaldskrár í fræðslu-og frístundastofnunum1310094
    9. 4.9 Gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu 20141310072
    10. 4.10 Gjaldskrá bókasafna og safna 20131210065
    11. 4.11 Gjaldskrá byggingaleyfis og þjónustugjalda byggingafulltrúa1310052
    12. 4.12 Gjaldskrá félagsheimila 20141310049
    13. 4.13 Gjaldskrá framkvæmdaleyfis og þjónustugjöld skipulagsfulltrúa 20141310051
    14. 4.14 Gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar 20141310053
    15. 4.15 Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 20141310047
    16. 4.16 Gjaldskrá gatnagerðagjalda 20141310050
    17. 4.17 Gjaldskrá hunda-og katthalds 20141310048
    18. 4.18 Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 20141310054
    19. 4.19 Gjaldskrá skipulagðra samgangna 20141310045
    20. 4.20 Gjaldskrá slökkviliðs Fjarðabyggðar 20141310044
    21. 4.21 Gjaldskrá tjaldsvæða 20141310046
    22. 4.22 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20131301332
    23. 4.23 Aðalfundur SSA 20131306105
    24. 4.24 Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 20131303083
    25. 4.25 Jafnréttisþing 2013 og jafnréttisvika 24. október-1. nóvember1310069
    26. 4.26 Kjördæmavika Þingmanna Norðausturkjördæmis1310089
    27. 4.27 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20131301075
    28. 4.28 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
    29. 4.29 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 751310005F
    30. 4.30 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 761310010F
    31. 4.31 Atvinnu- og menningarnefnd - 501310009F
    32. 4.32 Hafnarstjórn - 1231310003F
    33. 4.33 Fræðslu- og frístundanefnd - 451310007F
  5. 5. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 73

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 23. september staðfest með 9 atkvæðum.

  6. 6. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 74

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 26. september staðfest með 9 atkvæðum.

  7. 7. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 75

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 7. október staðfest með 9 atkvæðum.

  8. 8. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 76

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.

  9. 9. Fræðslu- og frístundanefnd - 44

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir fræðslu- og frístundanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 25. september staðfest með 9 atkvæðum.

  10. 10. Fræðslu- og frístundanefnd - 45

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir fræðslu- og frístundanefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 9. september staðfest með 9 atkvæðum.

  11. 11. Atvinnu- og menningarnefnd - 49

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir atvinnu- og menningarnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 25. september staðfest með 9 atkvæðum.

  12. 12. Atvinnu- og menningarnefnd - 50

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir atvinnu- og menningarnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 10. október staðfest með 9 atkvæðum.

  13. 13. Hafnarstjórn - 122

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. september staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 13.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20131301250
    2. 13.2 Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju1309027
    3. 13.3 Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar1111028
    4. 13.4 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
    5. 13.5 Hafnsækin starfsemi2009-02-13-215
    6. 13.6 Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða1304098
    7. 13.7 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20141308088
  14. 14. Hafnarstjórn - 123

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. október staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 14.1 Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju1309027
    2. 14.2 Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun1210091
    3. 14.3 Grjótgarður neðan við Strandgötu 86a og bryggja við Strandgötu 86b1309178
    4. 14.4 Öryggis- og brunavarnakerfi í húsakynni Sjóminjasafns Austurlands1310037
    5. 14.5 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20141308088
  15. 15. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 47 frá 9 október s.l.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar staðfest með 9 atkvæðum.

  16. 16. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 37 og 38 frá 24. september og 8.október teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Enginn tók til máls.

    Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 37 og 38 staðfest með 9 atkvæðum.

  17. 17. 730 - Deiliskipulag - Kollur búfjársvæði

    Mál 1206050 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag Kolls búfjársvæðis, skipulagsuppdráttur og greinargerð dags. 9. febrúar 2013, breytt 30. september 2013, með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. september 2013. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga þegar gögn hafa verið lagfærð í samræmi við samþykkt.

  18. 18. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 4

    Mál 1310073 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 4 úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Viðaukinn fjallar um viðhald húsa í málaflokknum Félagslegar íbúðir. Liðurinn hækkar um 2.000.000 kr og viðskiptareikningur Félagslegra íbúða við aðalsjóð hækkar um sömu upphæð. Jafnframt lækkar handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  19. 19. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 5

    Mál 1310097 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 5 úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Viðaukinn gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum. Fjárfestingaráætlun ársins 2013 fyrir Vatnsveitu Fjarðabyggðar hækki um kr. 45.700.000, verði samtals kr. 63.400.000 á árinu 2013 og heildar fjárfestingaráætlun B hluta Fjarðabyggðar verði kr. 688.400.000. Enn fremur er lagt til að fjármagna framkvæmdina af eigin fé vatsveitunnar og munu skammtíma skuldir vatnsveitunnar við aðalsjóð hækka sem því nemur og handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar lækka um sömu upphæð.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.