Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 357

30. september 2013, kl. 09:00 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 141 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Eiður Ragnarsson, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 30. september staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Atvinnu- og menningarnefnd

    Mál 1309033 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu formaður atvinnu- og menningarnefndar og fjármálastjóri.

    Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir atvinnu- og menningarmál og úthlutun ramma fjármagns vegna ársins 2014.

  2. 2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

    Mál 1212086 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sátu formaður eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar, mannvirkjastjóri og fjármálastjóri.

    Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir framkvæmdasvið og málaflokka þá sem undir það heyra, úthlutun ramma fjármagns vegna ársins 2014.

  3. 3. 44. mál til umsagnar frá atvinnuveganefnd Alþingis

    Mál 1309140 Allur ferill málsins

    Óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um hlutdeild sveitarfélaga í veiðigjaldi og tekjum af orkuauðlindum, 44. mál. Þess er óskað að umsögn berist eigi síðar en 8. október nk.

    Bæjarráð tekur jákvætt í efni þingsályktunar enda hefur Fjarðabyggð lýst þeirri afstöðu sinni m.a. á vettvangi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga að eðlilegt sé að hluti veiðigjalds renni til sveitarfélaga þar sem þau eiga uppruna sinn.

  4. 4. 740 Blómsturvellir 41 - Hlaða

    Mál 1205104 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá Guðmundi F. Pálssyni frá 8.september sl. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið kaupi fasteign hans að Blómsturvöllum 41 Neskaupstað. Vísað til bæjarráðs frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd en nefndin leggur til að eignin verði keypt.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að ræða við bréfritara.

  5. 5. Ársfundur Starfsendurhæfing Austurlands 2013

    Mál 1309143 Allur ferill málsins

    Fram lagt fundarboð ársfundar Starfa verður haldinn 4. október nk. kl. 14:00 að Vonarlandi Egilsstöðum.

    Bæjarráð felur bæjarritara að fara með umboð sveitarfélagsins á ársfundinum.

  6. 6. Erindi frá innanríkisráðuneyti vegna lögfestingar Barnasáttmála og fræðsluþinga um ofbeldi gegn börnum

    Mál 1309154 Allur ferill málsins

    Innanríkisráðuneytið vekur athygli á fræðsluþingum sem haldin verða undir heitinu "vitundarvakning um kynferðilsegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum.

    Þing verður haldið 9. október n.k. í Grunnskóla Reyðarfjarðar kl. 12:30 - 16:30. Ávarp flytur Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.

  7. 7. Fyrirspurn vegna lögheimilisskráningar starfsmanna Suðurverks er vinna við Norðfjarðargöng

    Mál 1309164 Allur ferill málsins

    Þjóðskrá Íslands hefur óskað eftir formlegu erindi frá bæjaryfirvöldum vegna stofnunar á heimilisfanginu "Vinnubúðir Dalbraut Eskifirði" vegna búsetu starfsmanna verktaka við Norðfjarðargöng.

    Bæjarráð óskar eftir við Þjóðskrá Íslands að starfsmenn Suðurverks og Metrostav a.s. verði skráðir með lögheimili í heimilisfanginu "Vinnubúðir Dalbraut Eskifirði". Bæjarritara falið að afgreiða erindið.

  8. 8. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um framlengingu á samningi um rekstur Egilsbúðar við núverandi rekstraraðila. Fram lagt minnisblað forstöðumanns stjórnsýslu og eigna- og framkvæmdafulltrúa (trúnaðarmál).

    Í núgildandi samningi er ákvæði um framlengingu samnings.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við leigutaka um framlengingu á leigusamningi um Egilsbúð.

  9. 9. Samningar sveitarfélaga og Fjölís - staða mála

    Mál 1309151 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar tvö bréf Sambandsins vegna stöðu mála er varða samninga við Fjölís er varðar heimildir til ljósritunar og hliðarstæðrar eftirgerðar á efni í skólum.

    Vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

  10. 10. Vaxtasamningur - Tillögur að styrkbærum verkefnum 2013

    Mál 1302104 Allur ferill málsins

    Auglýst hefur verið eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands. Umsóknarfrestur vegna styrkumsókna til Vaxtarsamnings Austurlands er til 3.nóvember nk.

    Vísað til atvinnu- og menningarnefndar til afgreiðslu.

  11. 11. Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis haustið 2013

    Mál 1309169 Allur ferill málsins

    Fjárlaganefnd bíður fulltrúum sveitarfélaga til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu við fjárlagafrumvarpið 2014.

    Í boði eru fundartímar 28. og 29.október og fyrir hádegi 30.október og 1.nóvember.

    Bæjarráð óskar eftir fjarfundi með fjárlaganefnd ef kostur er.

  12. 12. Kaup á eignum Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf

    Mál 1309174 Allur ferill málsins

    Lagður fram endanlegur kaupsamningur og afsal við Eignarhaldsfélagið fasteign hf um kaup á eignum félagsins ásamt fylgigögnum. Um er að ræða sundlaug á Eskifirði og slökkvistöð á Mjóeyri. Í samræmi við 11. gr. leigusamnings aðila er kaupverð hins selda 924.661.655 kr. Vísað er til samþykkts viðauka við fjárhagsáætlun ársins vegna kaupanna.

    Bæjarráð samþykkir kaupsamning og afsal vegna kaupa á eignunum og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  13. 13. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða

    Mál 1304098 Allur ferill málsins

    Fram lögð til kynningar skýrsla Alta um mat á skipulagskostum vegna olíuhafnar í Reyðarfirði.

    Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og hafnarstjórnar til umfjöllunar.

  14. 14. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 37 frá 24. september 2013 lögð fram til kynningar.

  15. 15. Atvinnu- og menningarnefnd - 49

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 49 frá 25.september 2013 lögð fram til kynningar.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 73

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 73 frá 23.september 2013 lögð fram til kynningar.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 74

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 74 frá 26. september 2013 lögð fram til kynningar.

  18. 18. Fræðslu- og frístundanefnd - 44

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 44 frá 25. september lögð fram til kynningar