Bæjarráð, fundur 358
1. október 2013, kl. 15:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 1. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Fræðslu- og frístundanefnd
Mál 1309034 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sátu formaður fræðslu- og frístundanefndar, fræðslustjóri og fjármálastjóri. Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir fræðslu- og frístundamál og úthlutun ramma fjármagns vegna ársins 2014.
Bæjarráð felur fræðslustjóra ásamt fræðslu- og frístundanefnd í samráði við fjármálastjóra að útfæra tillögur að áætlun viðkomandi málaflokka þannig að hún falli að útgefnum fjárhagsramma 2014 m.v. umræðuna á fundinum.
-
2. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014
Mál 1308088 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sátu varaformaður hafnarstjórnar, framkvæmdastjóri Fjarðarbyggðarhafna og fjármálastjóri. Farið yfir fjárhagsáætlun fyrir hafnarsjóð og úthlutun ramma fjármagns vegna ársins 2014.