Bæjarráð, fundur 359
8. október 2013, kl. 12:30 til 15:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 8. október staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014
Mál 1307059 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.
Farið yfir stöðu áætlunargerðarinnar og vinnu við afgreiðslu áætlunarinnar.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2014 - Bæjarráð
Mál 1309036 Allur ferill málsins
Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.
Farið yfir fjárhagsramma málaflokksins og áherslu í starfsemi.
-
3. Aukafjárveiting vegna framkvæmda í Breiðablik.
Mál 1309160 Allur ferill málsins
Framkvæmdasvið fer fram á aukafjárveitingu, vegna framkvæmda í Breiðablik á Neskaupstað, til að koma íbúð í nothæft ástand svo hægt sé að leigja hana út.
Bæjarráð samþykkir aukafjárveitingu með sérstökum viðauka.
-
4. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 4
Mál 1310073 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra frá 8.október 2013 vegna viðhaldsframkvæmda í Breiðabliki, Mýrargötu 18, í Neskaupstað.
Bæjarráð samþykkir viðaukan fyrir sitt leyti og vísar honum til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
Viðaukinn fjallar um viðhald húsa í málaflokknum Félagslegar íbúðir sem hækka um 2.000.000 kr og viðskiptareikningur Félagslegra íbúða við aðalsjóð hækki um sömu upphæð. Jafnframt lækkar handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar um sömu upphæð.
-
5. Boð á 1. fund Hringborðs Norðurslóða 12.-14. október í Reykjavík
Mál 1309127 Allur ferill málsins
Boðað er til 1. fundar hringborðs Norðurslóða 12. til 14. október n.k. í Reykjavik.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á fundinn.
-
6. Stjórnarfundur Skólaskrifstofu Austurlands 2013
Mál 1303098 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Skólaskrifstofu Austurlands frá 30.september lögð fram til kynningar ásamt ársreikningi 2012.
-
7. Umsókn um styrk vegna starfsemi samtakanna Landsbyggðin lifi
Mál 1310039 Allur ferill málsins
Beiðni um 100.000 kr. styrk vegna starfsemi samtakanna Landsbyggðin lifi.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni þar sem langt er liðið á fjárhagsárið og fjárheimildir fullnýttar.
-
8. Fundur með stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 1310066 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga boða til fundar með fulltrúum sveitarstjórna á Austurlandi 8.nóvember í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði milli kl. 14:00 og 17:00. Auk þeirra verða fulltrúar úr stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga á fundunum.
Bæjarstjóri og bæjarráð munu sitja fund með stjórninni.
-
9. Hafnarstjórn - 122
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 122 frá 30.september 2013 lögð fram til kynningar.