Hafnarstjórn, fundur 122
30. september 2013, kl. 16:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Benedikt Sigurjónsson, varamaður
- Björgvin Már Hansson, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 359 liður 9
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 122 frá 30.september 2013 lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 141 liður 13
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 30. september staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013
Mál 1301250 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnarsambands Íslands nr. 359 dags. 3. september 2013. Kynnt.
-
2. Hafnarmál á Norðfirði - Lenging stálþils togarabryggju
Mál 1309027 Allur ferill málsins
Fyrir liggur að útboðsgögn vegna lengingar stálþils Togarabryggju á Norðfirði eru að verð tilbúin til útboðs. Hafnarstjórn samþykkir að bjóða lengingu stálþilsins út.
-
3. Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Gerð grein fyrir stöðu mála við framkvæmdir við stækkun Norðfjarðarhafnar og flutning smábátahafnarinnar á nýjan stað. Það liggur fyrir að gömlu trébryggjur C-deildar eru orðnar mjög lélegar og því þörf á að endurnýja þær. Hafnarstjórn samþykkir að kaupa eina 20 metra floteiningu í stað gömlu eininganna ásamt fingrum.
-
4. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Bréf frá Trévangi ehf dags. 10. september 2013 þar sem ítrekuð er óánægja með framgang mála í samningaferli vegna smíði löndunarbryggju fyrir smábáta á Norðfirði. Lögð fram drög að svari til Trévangs, að fengnu lögfræðiáliti um málið. Hafnarstjórn samþykkti fyrirliggjandi drög að svarbréfi og fól framkvæmdastjóra að ljúka erindinu.
-
5. Hafnsækin starfsemi
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Tekin til umræðu samþykkt bæjarstjórnar er varðar kaup á landi undir hafnsækna starfsemi og kynnt minnisblað bæjarstjóra merkt trúnaðarmál.
-
6. Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða
Mál 1304098 Allur ferill málsins
Á fundinum var kynnt skýrsla um skipulagskosti vegna hafnsækinnar starfsemi.
-
7. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014
Mál 1308088 Allur ferill málsins
Umfjöllun um fjárhagsáætlun hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2014 ásamt gjaldskrá og þriggja ára áætlun. Hafnarstjórn samþykkir drög að fjárhagssáætlun.