Hafnarstjórn, fundur 121
27. ágúst 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 353 liður 16
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 121 frá 27. ágúst lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 139 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. NORA - Experience exchange project
Mál 1307034 Allur ferill málsins
Farið yfir þátttöku Fjarðabyggðar í Nora verkefni með Stavanger og fleiri aðilum. Þennan fyrsta lið fundarins sat Gunnar Jónsson bæjarritari.
Gunnar gerði grein fyrir fundi sem hann ásamt bæjarstjóra sátu með Harald Finnvik vegna verkefnisins.
Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Vísað til hafnarstjórnar til umræðu.
Hafnarstjórn fagnar aðkomu Fjarðabyggðar í verkefninu og samþykkir þátttökuna fyrir sitt leiti.
Gunnar yfirgaf síðan fundinn.
-
2. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu
Mál 1308005 Allur ferill málsins
Umsókn frá Thorship dags. 6. ágúst 2013 þar sem óskað er eftir undanþágur frá lóðsskyldu fyrir Dmytro Antoshchenko skipstjóra á Mv. Margarethu að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undaþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Dmytro Antoshchenko skipstjóra á Mv. Margarethu.
-
3. Umsókn um hafnsögumannsskírteini fyrir Árna Bergþór Kjartansson
Mál 1308019 Allur ferill málsins
Drög að umsögn hafnarstjórnar vegna umsóknar um hafnsögumannsskírteinis fyrir Árna Bergþór Kjartansson starfsmann Fjarðabyggðarhafna. Hafnarstjórn samþykkti drögin.
-
4. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Drög að verksamningi lögð fram um byggingu löndunarbryggju fyrir smábáta á Norðfirði. Samningurinn er við Guðmund Guðlaugsson, bryggjusmið og er upp á 29,5 milljónir kr. með verklokum 15. apríl 2014. Hafnarstjórn samþykkir samninginn og vísar honum til staðfestingar í bæjarráði.
-
5. Plan undir löndunarbúnað á löndunarbryggju á Eskifirði
Mál 1308089 Allur ferill málsins
Með bréfi dags. 23. ágúst 2013 sækir Mannvit um leyfi fyrir hönd Eskju til að gera plan undir löndunarbúnað á löndunarbryggjunni á Eskifirði. Hafnarstjórn fagnar framtaki Eskju og samþykkir framkvæmdina fyrir sitt leiti og vísar málinu til kynningar hjá byggingarfulltrúa.
-
6. Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 2014
Mál 1308088 Allur ferill málsins
Undirbúningur fjárhagsáætunarvinnu hafnarsjóðs fyrir árið 2014 ásamt langtímaáætlun.