Hafnarstjórn, fundur 120
8. ágúst 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
- Steinþór Pétursson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 350 liður 8
Fram lögð fundargerð hafnarstjórnar nr. 120 frá 8. ágúst 2013 til staðfestingar.
Dagskrá
-
1. Fundargerðir CI á árinu 2013
Mál 1303014 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland dags. 2. júlí 2013.
Hafnarstjórn ákvað að nýta sameiginleganstarfsmann Cruise Iceland á sýningunni.
Hafnarstjórn ákvað einnig að nýta sé ferð fulltrúa Íslandsstofu á Road show í haust
Að öðru leiti er fundargerðin kynnt.
-
2. Kaup á Strandgötu 7, Reyðarfirði - Trúnaðarmál
Mál 1303116 Allur ferill málsins
Vísað til afgreiðslu hafnarstjórnar frá bæjarráði máli varðandi kaup á húseigninni að Strandgötu 7 á Reyðarfirði. Í meðfylgjandi minnisblaði má sjá aðdraganda málsins. Hafnarstjórn hafnar kaupum á húseigninni fyrir sitt leiti.
-
3. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Bréf frá Trévangi ódagsett en móttekið 17. júli 2013 þar sem líst er yfir óánægju með vinnubrögð hafnarstjórnar í máli er snýr að verðkönnun vegna löndunarbryggju fyrir smábáta á Norðfirði. Framkvæmdastjóri kynnti drög að svari við erindinu. Hafnarstjórn samþykkir drögin með áorðnum breytingum.
-
4. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta
Mál 1301313 Allur ferill málsins
Kynntar niðurstöður úr viðræðum við Guðmund Guðlaugsson bryggjusmið um að taka að sér smíði löndunarbryggju fyrir smábáta á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkir að framkvæmdastjóri gangi frá samningi til undirritunar við Guðmund Guðlaugsson.
-
5. Smábátahöfn Stöðvarfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211017 Allur ferill málsins
Umfjöllun um umhverfisfrágang á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn leggur til að útboðsmörk verði þau sömu og hönnunarmörk voru og óskar eftir aðkomu sveitarsjóðs að skiptingu á kostnaði.
-
6. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun
Mál 1210091 Allur ferill málsins
Lögð fram drög að greinargerð frá Siglingastofnun vegna 2. áfanga Mjóeyrarhafnar. Kynnt.