Hafnarstjórn, fundur 119
5. júlí 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Guðmundur Þorgrímsson, formaður
- Sævar Guðjónsson, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Gísli Benediktsson, aðalmaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 346 liður 18
Fundargerð hafnarstjórnar nr.119 frá 5.júlí 2013 samþykkt í umboði bæjarstjórnar.
Dagskrá
-
1. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Tilboð í umhverfi smábátahafnar Fáskrúðsfirði - jarðvinna og umhverfisfrágangur. Lagður fram samanburður tilboðs við kostnaðaráætlun verkkaupa. Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði Tandrabergs ehf fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslunni til bæjarráðs en vekur athygli á að ekki er búið að fara endanlega yfir tilboðið af hálfu framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar.
-
2. Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Tilboð í dýpkun Norðfjarðarhafnar og fyllingu garðstæðis. Lagður fram samanburður tilboða við kostnaðaráætlun verkkaupa. Hafnarstjórn samþykkir að taka tilboði Björgunar ehf. fyrir sitt leyti og vísar afgreiðslunni til bæjarráðs.