Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 346

8. júlí 2013, kl. 16:00 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Fram lagður til kynningar úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru vegna ákvörðunar Fiskistofu, frá 15.mars 2012, um útgáfu rekstrarleyfis fyrir eldi á laxi í sjókvíum í Reyðarfirði til að framleiða allt að 6.000 tonn af laxi á ári.

  2. 2. Endurnýjun samnings N4 um sjónvarpsefni

    Mál 1306106 Allur ferill málsins

    Umræða um framlengingu á samning um miðlun sjónvarpsefnis og styrk til N4 sjónvarpsstöðvarinnar en samningur rennur út 15. júlí n.k.

    Bæjarráð óskar eftir umsögn markaðs-og upplýsingafulltrúa um endurnýjun samnings.

  3. 3. Ársreikningur Eignarhaldsf. Hrauns 2012

    Mál 1307013 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Fram lagður til staðfestingar ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns fyrir árið 2012.

    Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Eignarhaldsfélagsins Hrauns fyrir árið 2012 og undirritar hann.

  4. 4. Fjarskiptamál í Mjóafirði

    Mál 1305135 Allur ferill málsins

    Bréf forstjóra Símans frá 26.júní er varðar símasamband í Mjóafirði lagt fram til kynningar.

    Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að tryggt sé að traust fjarskiptasamband sé við Mjóafjörð.

  5. 5. Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1305034 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Trúnaðarmál. Lagt fram yfirlit yfir rekstur málaflokka Fjarðabyggðar janúar - maí 2013.

  6. 6. Samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð

    Mál 1305078 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 20. júní að vísa samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð til síðari umræðu í bæjarráði, með umboði, í sumarleyfi bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð og felur framkvæmdasviði að auglýsa samþykktina og birta í Stjórnartíðindum.

  7. 7. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2013

    Mál 1301332 Allur ferill málsins

    Fundargerð 7.fundar stjórnar samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 2.júlí lögð fram til kynningar.

  8. 8. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013

    Mál 1301338 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnarfundar nr. 807 frá 28.júní lögð fram til kynningar.

  9. 9. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2012

    Mál 1307014 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Fram lagður til staðfestingar ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2012.

    Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2012 og undirritar hann.

  10. 10. Ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar 2012

    Mál 1307011 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri.

    Fram lagður til staðfestingar ársreikningur Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2012.

    Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti ársreikning Rafveitu Reyðarfjarðar fyrir árið 2012 og undirritar hann.

  11. 11. Tillaga mannvirkjastjóra að breytingum á störfum á framkvæmdasviði

    Mál 1307026 Allur ferill málsins

    Minnisblað framkvæmdastjóra frá 4.júlí, um tillögur að breytingum á störfum á framkvæmdasviði, lagt fram til kynningar.

  12. 12. Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði

    Mál 1011086 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat umhverfisstjóri.

    Landbúnaðarnefnd tók fyrir minnisblað umhverfisstjóra frá 3.júlí sl. þar sem teknar eru saman niðurstöður af fundi með fulltrúum Matvælastofnunar hinn 19.júní sl. og tillögur um aðgerðir til þess að hefta ágang búfjár inn í þéttbýli, skógræktarlönd og friðuð svæði sem landbúnaðarnefnd samþykkti

    Bæjarráð samþykkir tillögu landbúnaðarnefndar um að stemma stigu við ágangi sauðfjár inn á friðuð svæði í Fjarðabyggð. Framkvæmdasviði falið að framkvæma tillöguna.

  13. 13. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211018 Allur ferill málsins

    Vísað til staðfestingar frá hafnarstjórn.

    Bæjarráð samþykkir tilboð Tandrabergs ehf um framkvæmdir við umhverfi smábátahafnar á Fáskrúðsfirði - jarðvinna og yfirborðsfrágang.

  14. 14. Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar

    Mál 1111028 Allur ferill málsins

    Vísað til staðfestingar frá hafnarstjórn.

    Bæjarráð samþykkir tilboð Björgunar ehf um framkvæmdir við dýpkun fiskihafnar á Norðfirði og fyllingu undir garðstæði.

  15. 15. Hluti af Sunnuhvolstúni ofan Skólavegar Fáskrúðsfirði, lóð boðin Fjarðabyggð til kaups

    Mál 1307012 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Bréf Guðnýjar Bjargar og Jóhönnu Ásdísar Þorvaldsdætra frá 30.júní þar sem eignarhluti þeirra í lóðinni Sunnuhvolstúni ofan Skólavegar á Fáskrúðsfirði er boðinn Fjarðabyggð til kaups.

    Fjármálastjóra falið að ræða við bréfritara og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar samning.

  16. 16. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013

    Mál 1301075 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 35 frá 24.júní 2013 samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

  17. 17. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 67

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 67 frá 24.júní 2013 samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

  18. 18. Hafnarstjórn - 119

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr.119 frá 5.júlí 2013 samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

    1. 18.1 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur1211018
    2. 18.2 Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar1111028