Bæjarráð, fundur 347
15. júlí 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 7
Fundargerð bæjarráðs frá 15. júlí til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Kaup á Strandgötu 7, Reyðarfirði - Trúnaðarmál
Mál 1303116 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir, fyrir sitt leyti, kaup á húsnæðinu að Strandgötu 7, Reyðarfirði. Vísað til hafnarstjórnar.
-
2. Kaup á Egilsbraut 4 Neskaupstað - Trúnaðarmál
Mál 1306025 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Landsbankinn hefur samþykkt nýtt kauptilboð í Egilsbraut 4 Neskaupstað. Bæjarráð staðfestir kaupin. Vísað til fjármálastjóra með beiðni um að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun sem lagður verði fyrir bæjarráð.
-
3. Krafa Slökkviliðs Fjarðabyggðar um vangoldin laun vegna frádráttar meintra ofgreiddra launa -
Mál 1306112 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bréf Löggarðs vegna slökkviliðsmanna í Fjarðabyggð, lagt fram til kynningar, en í bréfinu er lögð fram krafa um greiðslu á þrekálagi afturvirkt vegna starfsmats. Jafnframt lagt fram drög að svarbréfi. Bæjarráð samþykkir að hafna kröfu.
-
4. Lántaka vegna endurfjármögnunar skuldbindinga
Mál 1306067 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir stöðu mála vegna endurfjármögnunar skuldbindinga.
-
5. Lögmæti erlendra lána Íslandsbanka hf.
Mál 1306052 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Í bréfi Íslandsbanka frá 6.júní kemur fram að bankinn telji að lán Fjarðabyggðar nr. 103747 falli ekki undir dóm Hæstaréttar nr. 524/2011 frá 7.júní 2012, teljist því löglegt og verði ekki endurreiknað á grundvelli dóma Hæstaréttar frá 16.febrúar og 18.október 2012.
-
6. Kaupsamningur um hluta í Neseigninni af db. Guðlaugar Ingvarsdóttur
Mál 1307028 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Bæjarráð staðfestir samning um kaup á hluta af Neseigninni af db. Guðlaugar Ingvarsdóttur á kr. 1.188.020 fyrir 19 2/3 álnir lands.
-
7. 730 - Deiliskipulag, Kollur búfjársvæði
Mál 1206050 Allur ferill málsins
Auglýsingartími er liðinn, níu athugsemdir bárust.
Í umboði bæjarstjórnar samþykkir bæjarráð deiliskipulag Kolls búfjársvæðis, skipulagsuppdrátt og greinagerð, dags. 9. febrúar 2013 br. 13. júní 2013, með þeim breytingum sem fram koma á uppdrætti og í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. júní 2013. Málsmeðferð verður í samræmi við 42. gr. skipulagslaga þegar gögn hafa verið lagfærð í samræmi við samþykkt.
-
8. Leitað eftir sveitarfélögum til að taka á móti hælisleitendum
Mál 1307050 Allur ferill málsins
Bréf innanríkisráðuneytisins frá 10.júlí þar sem leitað er eftir samstarfi við sveitarfélög vegna móttöku á hælisleitendum. Erindi vísað til félagsmálanefndar.
-
9. Boð á Íslandsdaga í Gravelines 2013
Mál 1306092 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag móttöku gesta og kynnt dagskrá á Frönskum Dögum 2013. Einnig lagt fram boð Gravelines á Íslandsdaga 2013, 26. til 30. september, en fyrirhugað er að senda þrjá fulltrúa til Gravelines.
-
10. Framtíð gömlu Hulduhlíðar 2013
Mál 1302140 Allur ferill málsins
Bréf Guðbjargar Rósar Guðjónsdóttur og Hrefnu Eyþórsdóttur frá 15.júlí er varðar aðstöðu til sjúkraþjálfunar. Bæjarráð felur bæjarritara að taka saman minnisblað yfir stöðu og nýtingu gömlu Hulduhlíðar.
-
11. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013
Mál 1301075 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 36 frá 8. júlí samþykkt í umboði bæjarstjórnar.