Kaup á Egilsbraut 4 Neskaupstað - Trúnaðarmál
Mál 1306025 Fyrst á dagskrá 10. júní 2013, síðast 22. ágúst 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 343 liður 3
Málið tekið fyrir sem trúnaðarmál. Lagt fram kauptilboð í Egilsbraut 4, Neskaupstað. Um er að ræða eignarhluta Landsbankans, áður bílaverkstæði. Málið tekið til umræðu. Bæjarráð hafnar framkomnu tilboði og felur bæjarstjóra að gera nýtt tilboð í ljósi umræðna á fundinum.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 2.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 343“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 347 liður 2
Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Landsbankinn hefur samþykkt nýtt kauptilboð í Egilsbraut 4 Neskaupstað. Bæjarráð staðfestir kaupin. Vísað til fjármálastjóra með beiðni um að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun sem lagður verði fyrir bæjarráð.
-
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 7.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 347“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.