Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 343

10. júní 2013, kl. 09:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Guðmundur Þorgrímsson, varamaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 137 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 343 frá 10.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð

    Mál 1305078 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað frá 7.júní. Samþykkt um byggingarnefnd lögð fram og vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Reglur um fullnaðarafgreiðslur embættismanna

    Mál 1306010 Allur ferill málsins

    Drög að reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna lagðar fram og vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Kaup á Egilsbraut 4 Neskaupstað - Trúnaðarmál

    Mál 1306025 Allur ferill málsins

    Málið tekið fyrir sem trúnaðarmál. Lagt fram kauptilboð í Egilsbraut 4, Neskaupstað. Um er að ræða eignarhluta Landsbankans, áður bílaverkstæði. Málið tekið til umræðu. Bæjarráð hafnar framkomnu tilboði og felur bæjarstjóra að gera nýtt tilboð í ljósi umræðna á fundinum.

  4. 4. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2013

    Mál 1301338 Allur ferill málsins

    Framlögð 806. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  5. 5. Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2013, 10.júní

    Mál 1305138 Allur ferill málsins

    Framlagt fundarboð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands vegna aðalfundar sem haldinn verður 10. júní. Bæjarstjóri fór yfir drög að nýjum samþykktum fyrir atvinnuþróunarsjóð og þær tillögur sem stjórn sjóðsins hefur sett fram. Atvinnu- og menningarnefnd tók málið fyrir á fundi í síðustu viku og leggur til að bæjarstjóri fari með umboð Fjarðabyggðar á aðalfundinum.

  6. 6. Nýsköpunarverðlaun 2013 og nýsköpunarráðstefna

    Mál 1306001 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um nýsköpunarráðstefnu og tilnefningu til nýsköpunarverðlauna sem veitt verða í janúar 2014. Frestur til tilnefninga er til 1.nóvember. Vísað til bæjarritara til frekari vinnslu og til umfjöllunar í atvinnu- og menningarnefnd.

  7. 7. Ársreikningar 2012 - Uppsalir

    Mál 1305120 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Uppsala fyrir árið 2012 lagður fram til kynningar. Ársreikningi vísað til félagsmálastjóra og fjármálastjóra til skoðunar.

  8. 8. Ársreikningar 2012 - Hulduhlíð

    Mál 1305119 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Hulduhlíðar lagður fram til kynningar. Ársreikningi vísað til félagsmálastjóra og fjármálastjóra til skoðunar.

  9. 9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 44 frá 28.maí lögð fram til kynningar.

  10. 10. Atvinnu- og menningarnefnd - 47

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 47 frá 6.júní lögð fram til kynningar.

  11. 11. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 65

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 65 frá 3.júní lögð fram til kynningar.