Bæjarstjórn, fundur 137
20. júní 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Eiður Ragnarsson, varamaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Gunnar Ásgeir Karlsson, varamaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 342
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.
Fundargerð bæjarráðs nr. 342 frá 3.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 1.1 Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf1104081
- 1.2 Mat á leigusamningum við Reiti II1302116
- 1.3 Beiðni um niðurfellingu fasteignaskatts.1304074
- 1.4 Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 20131109095
- 1.5 Upplýsingaöryggismál1305128
- 1.6 Vitinn á Dalatanga1305122
- 1.7 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20131305147
- 1.8 Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-20141210066
- 1.9 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
-
2. Bæjarráð - 343
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs nr. 343 frá 10.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 2.1 Samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð1305078
- 2.2 Reglur um fullnaðarafgreiðslur embættismanna1306010
- 2.3 Kaup á Egilsbraut 4 Neskaupstað - Trúnaðarmál1306025
- 2.4 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20131301338
- 2.5 Aðalfundur Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2013, 10.júní1305138
- 2.6 Nýsköpunarverðlaun 2013 og nýsköpunarráðstefna1306001
- 2.7 Ársreikningar 2012 - Uppsalir1305120
- 2.8 Ársreikningar 2012 - Hulduhlíð1305119
- 2.9 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
- 2.10 Atvinnu- og menningarnefnd - 471306002F
- 2.11 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 651305017F
-
3. Bæjarráð - 344
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs nr. 344 frá 18.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 3.1 Aðalfundur Veiðifélags Dalsárs 20. júní 20131306038
- 3.2 Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 20131305147
- 3.3 Kaup á faseigninni Túngötu 131306060
- 3.4 Námsferð til Skotlands 3.-5. september nk.1306050
- 3.5 Lokun á Norðfjarðarvegi um Fagradal vegna óveðurs,snjóa og-eða snjóflóðahættu1306069
- 3.6 Styrktarsjóður EBÍ 20131306061
- 3.7 Reglur um samskipti trúfélaga og skóla1304123
- 3.8 Óviðundandi þjónusta ferlimála í Fjarðabyggð1306073
- 3.9 Vatnsagi á lóðum á Eskifirði1306075
- 3.10 Hálendisvegur - beiðni um stuðning1305106
- 3.11 Uppsögn á Innkaupsamningi 20111306063
- 3.12 Lántaka vegna endurfjármögnunar skuldbindinga1306067
- 3.13 Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða - 20131302010
- 3.14 Hafnarstjórn - 1171306005F
- 3.15 Fræðslu- og frístundanefnd - 411306003F
- 3.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 661306006F
-
4. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 65
Fundargerðir eigna-, skipulags-og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Gunnar Á. Karlsson, Guðmundur Þorgrímsson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 65 frá 3.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
-
5. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 66
Fundargerðir eigna-, skipulags-og umhverfisnefndar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 66 frá 14.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
-
6. Atvinnu- og menningarnefnd - 47
Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Gunnar Á Karlsson, Eiður Ragnarsson.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 47 frá 6.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
-
7. Fræðslu- og frístundanefnd - 41
Til máls tóku: Esther Ösp Gunnarsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson, Gunnar Á Karlsson.
Fundargerð fræðslu- og frístundnefndar nr. 41 frá 12.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
-
8. Hafnarstjórn - 117
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 117 frá 11.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
- 8.1 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20131301250
- 8.2 Aðalfundur Cruise Iceland haldinn 8. maí 2013 í Reykjavík1304048
- 8.3 Alþjóðleg björgunarmiðstöð á Íslandi1306004
- 8.4 Hafnafundur 20. september 20131306036
- 8.5 Styrkbeiðni 2013 - Sjómannadagsráð Neskaupstaðar1305142
- 8.6 Umsókn um undanþágu vegne lóðsskyldu1305107
- 8.7 Vitinn á Dalatanga1305122
- 8.8 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
- 8.9 Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur1211018
- 8.10 Beiðni um stöðuleyfi fyrir matvagn við nýuppgerða bæjarbryggju á Norðfirði1306002
-
9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013
Mál 1301074 Allur ferill málsins
Til máls tóku Páll Björgvin Guðmundsson, Elvar Jónsson.
Fundargerð félagsmálanefndar nr. 44 frá 28. maí 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.
-
10. 735 - Deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði
Mál 1208085 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Gunnar Á Karlsson, Eiður Ragnarsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag Norðfjarðarvegar og nágrennis að gangamunna á Eskifirði, skipulagsuppdrátt, greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 11. febrúar 2013.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
-
11. 740 - Deiliskipulag vinnubúða við gangamunna á Norðfirði
Mál 1305011 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags vinnubúða við gangamunna á Norðfirði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða skipulagslýsingu með 9 atkvæðum.
-
12. 740 - deiliskipulag vinnubúða við Kirkjuból
Mál 1305012 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags vinnubúða við Kirkjuból.
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Páll Björgvin Guðmundsson.
Bæjarstjórn samþykkir framlagða skipulagslýsingu með 9 atkvæðum.
-
13. 750-Deiliskipulag neðan Búðavegar
Mál 1109016 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi neðan Búðavegar, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 7. mars. 2013.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
-
14. 755 - Br. á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna hafnarframkvæmda á Stöðvarfirði
Mál 1302123 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á aðalskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingar á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, þéttbýlisuppdrátt fyrir Stöðvarfjörð, vegna stækkunar hafnarsvæðis, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 13. mars 2013.
Málsmeðferð verði í samræmi við 32. gr. skipulagslaga.
-
15. 755 - Deiliskipulag hafnarsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 1301223 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag hafnarsvæðis á Stöðvarfirði, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 8. apríl 2013.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.
-
16. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013
Mál 1109095 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi úr hlaði jafnréttisstefna Fjarðabyggðar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Breytingar hafa verið gerðar á orðalagi gr. 3.3.1. þar sem vísað er til unglinga almennt vegna brottfalls úr almennum íþróttagreinum.
Enginn tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar.
-
17. Reglur um fullnaðarafgreiðslur embættismanna
Mál 1306010 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi reglum um fullnaðarafgreiðslur embættismanna úr hlaði.
Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um fullnaðarafgreiðslur embættismanna og felur bæjarstjóra að veita hlutaðeigandi starfsmönnum prókúru í samræmi við reglurnar.
-
18. Samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð
Mál 1305078 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa samþykkt um byggingarnefnd í Fjarðabyggð til síðari umræðu í bæjarráði með umboði í sumarleyfi bæjarstjórnar.
-
19. Upplýsingaöryggismál
Mál 1305128 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.
Drög að upplýsingaöryggisstefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði bæjarritara og Bjarna Júlíussonar um upplýsingaöryggi sveitarfélagsins og ráðstafanir lagt fram.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum upplýsingaöryggisstefnu fyrir Fjarðabyggð.
-
20. Lántaka vegna endurfjármögnunar skuldbindinga
Mál 1306067 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fylgdi málinu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að leita eftir við lánastofnanir að lána Fjarðabyggð og stofnunum u.þ.b. einn milljarð króna sem verði varið til endurfjármögnunar eldri skuldbindinga og kaupa á eignum Eignarhaldsfélagsins fasteignar hf. samkvæmt leigusamningi við það félag. Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að fela fjármálastjóra að leggja fram umsóknir og semja við lánastofnanir um greiðslukjör og lánsform með fyrirvara um endanlegt samþykki bæjarstjórnar.
-
21. Reglur um samskipti trúfélaga og skóla
Mál 1304123 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum drög að reglum um samskipti trúfélaga og skóla, er byggja á tillögum starfshóps skipuðum af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Hjá situr Borghildur Hlíf Stefánsdóttir.
-
22. Kjör 2013 í nefndir og ráð til eins árs
Mál 1306012 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi sameiginlegri tillögu framboða í bæjarstjórn úr hlaði.
Tillaga bæjarstjórnar um skipan í nefndir og embætti til eins árs sbr. samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar: Jón Björn Hákonarson, samþykkt með 9 atkvæðum.
1. varaforseti bæjarstjórnar: Jens Garðar Helgason, samþykkt með 9 atkvæðum.
2. varaforseti bæjarstjórnar: Elvar Jónsson, samþykkt með 9 atkvæðum.
Bæjarráð aðalmenn:
Jens Garðar Helgason formaður, Jón Björn Hákonarson varaformaður, Eydís Ásbjörnsdóttir.
Varamenn skipa sæti eftir 39. gr. samþykkta sveitarfélagsins.
Samþykkt með 9 atkvæðum.
Fulltrúar á aðalfund SSA:
Aðalmenn: Jón Björn Hákonarson(B), Guðmundur Þorgrímsson(B), Eiður Ragnarsson (B), Snjólaug Guðmundsdóttir (B), Jens Garðar Helgason (D), Valdimar O. Hermannsson (D),Ásta Kristín Sigurjónsdóttir(D), Sævar Guðjónsson (D), Elvar Jónsson(L) Eydís Ásbjörnsdóttir(L),Esther Gunnarsdóttir(L),Stefán Már Guðmundsson(L),Ásta Eggertsdóttir(L), Páll Björgvin Guðmundsson.
Varamenn: Jósef Auðunn Friðriksson (B), Svanhvít Aradóttir (B), Gísli Þór Briem (B), Svanbjörg Pálsdóttir(B), Guðlaug Dana Andrésdóttir(D),Borghildur Stefánsdóttir(D),Gunnar Á Karlsson(D), Benedikt Jóhannsson(D), Óskar Þór Hallgrímsson(D), Ævar Ármannsson(L), Heimir Arnfinnsson (L), Sigríður Margrét Guðjónsdóttir(L), Hanna Björk Birgisdóttir (L), Finnbogi Jónsson(L)
Samþykkt með 9 atkvæðum.
-
23. Launakjör kjörinna fulltrúa 2013
Mál 1306082 Allur ferill málsins
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu úr hlaði.
Bæjarstjórn samþykkir að skipa starfshóp sem fara skal yfir starfskjör kjörinna fulltrúa á vegum sveitarfélagsins og skila tillögum fyrir gerð fjárhagsáætlunar nú í haust. Skal miðað við að tillögur hópsins af nýjum starfskjörum taki gildi þann 1.júní 2014 þegar nýkjörinn bæjarstjórn Fjarðabyggðar hefur tekið við. Starfshópinn munu skipa Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson og Gunnar Jónsson bæjarritari.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu með 9 atkvæðum.
-
24. Tillaga um sumarfrí bæjarstjórnar
Mál 1007200 Allur ferill málsins
Tillaga 2. varaforseta bæjarstjórnar.
Lagt er til að bæjarstjórn taki sumarfrí í júlí og ágúst sbr. 7. gr. samþykkta Fjarðabyggðar og komi saman að nýju eftir sumarfrí, fimmtudaginn 22. ágúst 2013.
Einnig er lagt til að bæjarráði verði falið ákvörðunarvald og fullnaðarafgreiðsla mála bæjarstjórnar meðan á sumarfríi stendur.
Til máls tóku: Guðmundur Þorgrímsson, Elvar Jónsson.
Tillaga samþykkt með 8 atkvæðum, Guðmundur Þorgrímsson situr hjá.