Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

750-Deiliskipulag neðan Búðavegar

Mál 1109016 Fyrst á dagskrá 21. mars 2013, síðast 20. júní 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarstjórn, fundur 130 liður 20

    750-Deiliskipulag neðan Búðarvegar

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu að breyttu deiliskipulagi úr hlaði.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum að auglýsinga tillögu sem er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 7. mars 2013 og felur meðal annars í sér að smábátahafnarsvæði er breytt, Hafnargata er felld út, nýrri götu Oddeyrargötu bætt inn, og lóðir aðlagaðar núverandi vegi neðan lóða. Eldra skipulag verður jafnframt fellt úr gildi. Tillagan verður auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

  2. Bæjarstjórn, fundur 137 liður 13

    2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi neðan Búðavegar, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 7. mars. 2013.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.