Vitinn á Dalatanga
Mál 1305122 Fyrst á dagskrá 3. júní 2013, síðast 20. júní 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 342 liður 6
Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjámssonar staðarhaldara í Mjóafirði um hljóðvitann á Dalatanga og viðhald hans. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 100.000 kr. Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til umræðu og afgreiðslu í hafnarstjórn.
-
Hafnarstjórn, fundur 117 liður 7
Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar 3. júní 2013 var fjallað um bréf frá Sigfúsi Vilhjámssyni staðarhaldara í Mjóafirði um hljóðvitann á Dalatanga og viðhald hans. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 100.000 kr. Bæjarráð vísaði erindinu til umræðu og afgreiðslu í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 342“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 8.7
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 117“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.