Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 342

3. júní 2013, kl. 09:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 137 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Elvar Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs nr. 342 frá 3.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri. Bæjarráð felur fjármálastjóra að hefja vinnu við endurfjármögnun leigusamninga Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. og skoða samhliða því aðra fjármögnunarsamninga.

  2. 2. Mat á leigusamningum við Reiti II

    Mál 1302116 Allur ferill málsins

    Dagskrárliður er trúnaðarmál. Þennan dagskrárlið fundar sat fjármálastjóri. Bæjarstjóri og fjármálastjóri fóru yfir málið.

  3. 3. Beiðni um niðurfellingu fasteignaskatts.

    Mál 1304074 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað fræðslustjóra um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga sem falla undir reglur um niðurfellingu fasteignaskatts að 9/10 hlutum hafi félög skilað inn nauðsynlegum gögnum sbr. reglur.

    Um er að ræða Ungmennafélagið Leikni, Ungmennafélagi Austra, Golfklúbb Norðafjarðar og Rekstrarfélag Dalahallarinnar alls að fjárhæð 588.386 kr. Bæjarráð samþykkir styrkveitingu.

  4. 4. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013

    Mál 1109095 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn vísað á 136. fundi sínum jafnréttisstefnu til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði m.a. vegna orðalagsbreytinga í kafla 3.3.1. Bæjarritara falið að breyta orðalagi í grein 3.3.1. sbr. umræður á fundi.

  5. 5. Upplýsingaöryggismál

    Mál 1305128 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að upplýsingaöryggisstefnu fyrir Fjarðabyggð ásamt minnisblaði frá Bjarni Júlíussyni um upplýsingaöryggi sveitarfélagsins og ráðstafanir. Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  6. 6. Vitinn á Dalatanga

    Mál 1305122 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjámssonar staðarhaldara í Mjóafirði um hljóðvitann á Dalatanga og viðhald hans. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 100.000 kr. Bæjarráð tekur vel í erindið og vísar því til umræðu og afgreiðslu í hafnarstjórn.

  7. 7. Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2013

    Mál 1305147 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 17. maí sl. ásamt stefnumörkun stjórnar samtakanna.

  8. 8. Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1210066 Allur ferill málsins

    Einar Birgir Kristjánsson hefur óskað eftir lausn frá setu í atvinnu- og menningarnefnd. Hákon Guðröðarson er tilnefndur sem aðalmaður í hans stað. Anton Helgason er tilnefndur sem varamaður Hákonar í atvinnu- og menningarnefnd.

    Þórhallur Árnason hefur ósakað eftir lausn frá nefndarsetu í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Björgvin Erlendsson er tilnefndur sem varamaður í hans stað.

  9. 9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 44. frá 28. maí sl. lögð fram til kynningar.