Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 341

27. maí 2013, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 136 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 27. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Mat á leigusamningum við Reiti II

    Mál 1302116 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

  2. 2. Mögulegt ólögmæti lána LS frá 2006

    Mál 1207007 Allur ferill málsins

    Fram lögð greinargerð merkt trúnaðarmál.

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málshöfðunar gagnvart Lánasjóði sveitarfélaga.

  3. 3. Starf skólastjóra Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

    Mál 1305028 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri.

    Tillaga bæjarstjóra og fræðslustjóra til bæjarráðs er að auglýsa stöðu skólastjóra í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Í lok sumars 2013 fari fræðslustjóri í samráði við stjórnendur skólanna í þá vinnu að skoða og útfæra tillögur að leiðum sem stuðli að meira samstarfi og/eða sameiningu þessara stofnana í eina skólamiðstöð á Suðurfjörðum með hagsmuni nemenda og rekstur sveitarfélagsins að leiðarljósi. Afrakstur vinnunnar verði kynntur bæjarráði ekki seinna en við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

    Bæjarráð samþykkir tillögu bæjarstjóra og fræðslustjóra.

  4. 4. Íbúðir fyrir 60 ára og eldri - Hafnarbraut 2 740

    Mál 1304006 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir málum sem tengjast íbúðum fyrir 60 ára og eldri.

    Bæjarstjóra falið að vinna að málinu áfram.

    Bæjarstjóra heimilað að taka allt að 500.000 kr. af óráðstöfuðu, 21-69 vegna sérfræðivinnu.

  5. 5. Ársfundur Austurbrúar 31.maí 2013

    Mál 1305080 Allur ferill málsins

    Ársfundur Austurbrúar verður haldinn föstudaginn 31.maí kl. 14:00 í Herðubreið Seyðisfirði. Fulltrúar í fulltrúaráði fara með atkvæðisrétt á ársfundi, aðrir fundarmenn hafa málfrelsi og tillögurétt að undanskildum tillögurétti til stjórnarkjörs.

    Atvinnu- og menningarnefnd leggur til við bæjarstjórn að Páll Björgvin Guðmundsson fari með atkvæði Fjarðabyggðar á fundinum.

  6. 6. Átaksverkefni til að fjölga tímabundum störfum fyrir námsmenn

    Mál 1304083 Allur ferill málsins

    Tekið fyrir á fundi ESU. Vinnumálastofnun hefur úthlutað Fjarðabyggð 5 tímabundnum störfum fyrir námsmenn.

    Bæjarráð samþykkir að ungemennum yngri en 18 ára verði tryggð vinna í allt að 8 vikum á vegum sveitarfélagsins enda verði kostnaði mætt með lækkun á aðkeyptri vinnu framkvæmdasvið í gatna- og umhverfismálum.

  7. 7. Spurningar varðandi þjónustu fatlaðra

    Mál 1305027 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað þroskaþjálfa og félagsmálastjóra vegna skilgreiningu á íbúðum að Sunnugerði á Reyðarfirði, sem íbúðir með sólarhringsþjónustu fyrir fatlað fólk. Á fundi félagsmálanefndar þann 14. maí. tók nefndin undir tillögur starfsmanna og mælist til þess að húsnæðið að Sunnugerði verði skilgreint sem búsetuþjónusta fyrir fólk með fötlun í samræmi við reglugerð nr. 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu.

    Bæjarráð samþykkir að húsnæði að Sunnugerði 7 á Reyðarfirði verði skilgreint sem búsetuþjónusta fyrir fólk með fötlun. Jafnframt er framkvæmdasviði falið að leita leiða til að hefja endurbætur í samráði við fjölskyldusvið.

  8. 8. Endurskoðun samþykkta vegna nýrra sveitarstjórnarlaga

    Mál 1101139 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkti að vísa samþykktum sveitarfélagsins til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði milli umræðna.

    Fram lagðar uppfærðar samþykktir um stjórn Fjarðabyggðar og fundarsköp bæjarstjórnar frá fyrstu umræðu með athugasemdum sem komu frá innanríkisráðuneytinu.

    Breytingarnar samþykktar og vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  9. 9. Endurskoðun samþykkta fastanefnda

    Mál 1305041 Allur ferill málsins

    Bæjarstjórn samþykkti á 135. fundi sínum að vísa samþykktum nefnda til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði milli umræðna.

    Bæjarráð samþykkir samþykktir nefnda með breytingum um að þær verði erindisbréf nefnda sem bæjarstjórn setur þeim. Vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  10. 10. Innkaupareglur Fjarðabyggðar

    Mál 2008-01-25-92 Allur ferill málsins

    Innkaupareglur voru til umfjöllunar á 340. fundi bæjarráðs og var vísað til frekari umfjöllunar bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að breyta viðmiðum í verðfyrirspurnum í kaupum á þjónustu og vörum sbr. 10. gr. í reglunum úr 2 milj. kr. í 3 milj. kr., að lágmarki.

    Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

  11. 11. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013

    Mál 1109095 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísaði á 340. fundi sínum jafnréttisáætlun til frekari umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs og orðalagsbreytinga.

    Vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

  12. 12. Menningarhátíðin Pólar

    Mál 1305054 Allur ferill málsins

    Lagðar fram upplýsingar um fyrirhugaða hátíð á Stöðvarfirði í sumar. Leggur atvinnu- og menningarnefndin til að hátíðin fái aðgang að tjaldsvæði, íþróttaaðstöðu og samkomuhús sveitarfélagsins og vísar málinu til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir að hátíðin fái afnot af tilgreindum mannvirkjum.

  13. 13. Samningur við Austurgluggann

    Mál 1109156 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísaði málinu á fundi 340 til frekari umfjöllunar í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir að bæjaráði sem stjórnsýslunefnd sé falið að vinna í sumar viðmiðunarreglur er varði pólitíska umfjöllun á efni kostuðu af sveitarfélaginu.

  14. 14. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um endurnýjun á samnngi við núverandi leigutaka Egilsbúðar.

    Tillaga bæjarstjóra er að í grein 18. í samningi um rekstur félagsheimilsins Egilsbúðar verði breytt á þann veg að "samningsaðilar skuli ákvaða sameiginlega fyrir 15. September 2013 hvort endurnýja skuli samninginn um allt að 2 ár". Dagsetning í núverandi samningi er 31.maí 2013.

    Bæjarráð samþykkir tillöguna.

  15. 15. Hálendisvegur - beiðni um stuðning

    Mál 1305106 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sigurðar Gunnarssonar þar sem fjallað er um gerð hálendisvegar norðan Vatnajökuls.

    Bæjarráð felur bæjarritara að óska eftir fundi með bréfritara.

  16. 16. Opið bréf til sveitarstjórna um nauðungarsölur

    Mál 1305110 Allur ferill málsins

    Framlagt til kynningar bréf frá Hagsmunasamtökum heimilanna um nauðungarsölur á fasteignum einstaklinga.

  17. 17. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2013

    Mál 1305097 Allur ferill málsins

    Fundargerð samgöngunefndar SSA nr. 1 frá 15. maí lögð fram til kynningar.

  18. 18. Hafnarstjórn - 116

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 21. maí s.l. lögð fram til kynningar.

  19. 19. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 64

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 21. maí lögð fram til kynningar.

  20. 20. Atvinnu- og menningarnefnd - 46

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 23. maí lögð fram til kynningar.

  21. 21. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 14. maí lögð fram til kynningar.