Spurningar varðandi þjónustu fatlaðra
Mál 1305027 Fyrst á dagskrá 27. maí 2013, síðast 30. maí 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Velferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 341 liður 7
Lagt fram minnisblað þroskaþjálfa og félagsmálastjóra vegna skilgreiningu á íbúðum að Sunnugerði á Reyðarfirði, sem íbúðir með sólarhringsþjónustu fyrir fatlað fólk. Á fundi félagsmálanefndar þann 14. maí. tók nefndin undir tillögur starfsmanna og mælist til þess að húsnæðið að Sunnugerði verði skilgreint sem búsetuþjónusta fyrir fólk með fötlun í samræmi við reglugerð nr. 1054/2010 um þjónustu við fatlað fólk á heimili sínu.
Bæjarráð samþykkir að húsnæði að Sunnugerði 7 á Reyðarfirði verði skilgreint sem búsetuþjónusta fyrir fólk með fötlun. Jafnframt er framkvæmdasviði falið að leita leiða til að hefja endurbætur í samráði við fjölskyldusvið.
-
Bæjarstjórn, fundur 136 liður 2.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 341“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.