Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 340

22. maí 2013, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 136 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 22. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Innkaupareglur Fjarðabyggðar

    Mál 2008-01-25-92 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Innkaupareglur til umræðu og kynningar en þær hafa fengið umfjöllun í nefndum sveitarfélagsins.

    Vísað til frekari umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs.

  2. 2. Endurskoðun samþykkta vegna nýrra sveitarstjórnarlaga

    Mál 1101139 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að endurskoðuðum starfsskyldum stjórnenda Fjarðabyggðar.

    Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  3. 3. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013

    Mál 1109095 Allur ferill málsins

    Jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar var samþykkt í félagsmálanefnd þann 14. maí sl. og vísað til bæjarráðs til umræðu og afgreiðslu.

    Vísað til frekari umfjöllunar á næsta fundi bæjarráðs. Bæjarráð felur bæjarritara að lagfæra orðalag.

  4. 4. Símavist - Tilboð

    Mál 1301260 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað vegna fyrirhugaðs samnings við Símann um endurnýjun á borðsímabúnaði og símatengingum.

    Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Símann.

  5. 5. Neseignin lóðarleiga 2013

    Mál 1305052 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð tillaga um kaup á eignarhluta í Neseigninni af erfingjum Guðlaugar Ingvarsdóttur en þau bjóða eignarhlut sinn í Neseigninni til kaups.

    Bæjarráð samþykkir að eignarhlutar erfingja Guðlaugar Ingvarsdóttur verði keyptir. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69-, upphæð 1.188.020 kr.

  6. 6. Samningur við Austurgluggann

    Mál 1109156 Allur ferill málsins

    Málið tekið til umfjöllunar.

    Aflað verður frekari gagna og afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarráðs.

  7. 7. Félagsheimilið Skrúður 50.ára

    Mál 1305093 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf velunnara félagsheimilisins Skrúðs þar sem óskað er eftir samstarfi við bæjarstjórnina um félagsheimilið og heimild til að stofna hollvinasamtök.

    Bæjarráð fagnar framtaki um stofnun hollvinasamtaka um félagsheimilið Skrúð og vonast eftir góðu samstarfi um málefni þess.

  8. 8. Vorbæklingur 2013

    Mál 1302141 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Sigfúsar Vilhjálmssonar sem fjallar um vorbækling sveitarfélagsins.

    Bæjarráð tekur fram að umhverfisátak Fjarðabyggðar gildir fyrir alla byggðakjarna Fjarðabyggðar þó þess sé misjafnlega mikið getið í vorbæklingi.

  9. 9. Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1204061 Allur ferill málsins

    Sjálfstæðisflokkurinn tilnefnir Sævar Guðjónsson sem varamann í atvinnu- og menningarnefnd í stað Þórðar Vilbergs Guðmundssonar.

  10. 10. Ársfundur Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2013 og ársreikningur 2012

    Mál 1305056 Allur ferill málsins

    Lagður fram ársreikningur Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar fyrir árið 2012 til kynningar.

  11. 11. Sameining lífeyrissjóða sveitarfélaga

    Mál 1204044 Allur ferill málsins

    Lagt fram samkomulag Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar og Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga um sameiningu lífeyrissjóðanna.

    Bæjarráð staðfestir samninginn fyrir sitt leyti.

  12. 12. Á ferð um landið - Landsbyggðin lifi

    Mál 1305051 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Landsbyggðin lifi sem fjallar um kynningarferðir samtakanna um landið.

  13. 13. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 43 frá 14. maí sl. lögð fram til kynningar.