Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 117

11. júní 2013, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Árni Þórhallur Helgason, varamaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 344 liður 14

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 117 frá 11.júní lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 137 liður 8

    Til máls tóku: Eiður Ragnarsson, Sævar Guðjónsson.

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 117 frá 11.júní 2013 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 2013

    Mál 1301250 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 358 dags. 24. maí 2013. Kynnt.

  2. 2. Aðalfundur Cruise Iceland haldinn 8. maí 2013 í Reykjavík

    Mál 1304048 Allur ferill málsins

    Gögn frá aðalfundi Cruise Iceland sem haldin var 8. maí 2013. Kynnt.

  3. 3. Alþjóðleg björgunarmiðstöð á Íslandi

    Mál 1306004 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá fundi alþjóðlega björgunarmiðstöð á Íslandi sem haldinn var í innanríkisráðuneytinu 30. maí 2013. Kynnt.

  4. 4. Hafnafundur 20. september 2013

    Mál 1306036 Allur ferill málsins

    Erindi frá Hafnasambandi Íslands þar sem kynntur er hafnafundur sem halda á 20. september 2013. Kynnt.

  5. 5. Styrkbeiðni 2013 - Sjómannadagsráð Neskaupstaðar

    Mál 1305142 Allur ferill málsins

    Erindi frá sjómannadagsráði Neskaupstaðar móttekið 30.maí 2013 þar sem óskað er eftir styrk vegna hátíðarhalda á sjómannadaginn 2013. Hafnarstjórn samþykkir að veita sjómannadagsráði styrk að upphæð 250.000 kr. eins og gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun.

  6. 6. Umsókn um undanþágu vegne lóðsskyldu

    Mál 1305107 Allur ferill málsins

    Erindi frá Thorskip dags. 2. maí 2013 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Sergey Malozemlev skipstjóra á Mv. Margaretha að og frá Mjóeyrarhöfn. Auk þess að óska eftir undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Capt. Igor Gostev skipstjóra á Mv. Alexia að og frá Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsöguskyldu fyrir Sergey Malozemlev skipstjóra á Mv. Margaretha og Igor Gostev skipstjóra á Mv. Alexia.

  7. 7. Vitinn á Dalatanga

    Mál 1305122 Allur ferill málsins

    Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar 3. júní 2013 var fjallað um bréf frá Sigfúsi Vilhjámssyni staðarhaldara í Mjóafirði um hljóðvitann á Dalatanga og viðhald hans. Óskað er eftir styrk að fjárhæð 100.000 kr. Bæjarráð vísaði erindinu til umræðu og afgreiðslu í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk.

  8. 8. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta

    Mál 1301313 Allur ferill málsins

    Fundargerð dags. 28. maí 2013 frá opnun tilboða í smíði löndunarbryggju smábáta á Norðfirði. Hafnarstjórn harmar hversu fá verðtilboð bárust í verkið. Hafnarstjórn hafnar þeim tveim tilboðum sem bárust vegna þess hversu há þau voru, en annað var 170% en hitt 223% af kostnaðaráætlun. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að reyna að ná samningum sem næst kostnaðaráætlun við þann sem átti lægra tilboðið sem var Trévangur.

  9. 9. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur

    Mál 1211018 Allur ferill málsins

    Farið yfir drög að gögnum fyrir Fáskrúðsfjörð, gögn liggja fyrir á fundinum. Guðmundur Þorgrímsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Hafnarstjórn samþykkir að bjóða verkið út með verklokum í júní á næsta ári.

  10. 10. Beiðni um stöðuleyfi fyrir matvagn við nýuppgerða bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 1306002 Allur ferill málsins

    Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið, en setur það skilyrði að staðsetning verði sem vestast á planinu við bryggjuna. Jafnframt heimilar hafnarstjórn að Hildibrandur staðsetji borð vestast á bryggjunni. Stöðuleyfi veitir hins vegar eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.