Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 118

21. júní 2013, kl. 12:00 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Guðmundur Þorgrímsson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður
  • Gísli Benediktsson, aðalmaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, aðalmaður
  • Steinþór Pétursson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 345 liður 14

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 21. júní

    Bæjarráð samþykkir fundargerð hafnarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta

    Mál 1301313 Allur ferill málsins

    Í framhaldi af bókun á síðasta fundi hafnarstjórnar þar sem framkvæmdastjóra var falið að kanna hvort hægt væri að ná samningum við þann aðila sem átti lægra tilboðið í smíði löndunaraðstöðu fyrir smábáta á Norðfirði. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu og fór yfir niðurstöðu fundar með fulltrúum Trévangs. Hafnarstjórn fól framkvæmdastjóra að gera Trévangi gagntilboð á grunni umræðu á fundinum.