Bæjarráð, fundur 345
25. júní 2013, kl. 12:00 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Guðmundur Þorgrímsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 9
Fundargerð bæjarráðs frá 25. júní til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Veiðigjald - 15.mál beiðni um umsögn
Mál 1306089 Allur ferill málsins
Umsögn Fjarðabyggðar um frumvarp til laga um veiðigjald, 15. mál lögð fram til umræðu en það var sent nefndasviði Alþingis í gær fyrir tímafrest.
Umsögnin staðfest.
-
2. Afsal - Hafnarbraut 34 Neskaupstað
Mál 1211021 Allur ferill málsins
Framlagt til kynningar afsal af Hafnarbraut 34 í Neskaupstað sem keypt hefur verið til niðurrifs.
Samþykkt.
-
3. Ósk um endurnýjun á lóðaleigu að Strandgötu 7, 730
Mál 1303116 Allur ferill málsins
Málið var tekið fyrir í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd 8. apríl 2013 og var því vísað til vinnslu hjá mannvirkjastjóra og bæjarstjóra. Samningarviðræður hafa staðið yfir við lóðarhafa um uppkaup á húsinu og bæjarstjóra falið að halda þeim áfram. Gangi þær ekki eftir vísar bæjarráð málinu til eigna-, skipulags og umhverfisnefndar til umfjöllunar vegna umsóknar lóðarhafa um breytta notkun á húsnæðinu.
Lagt var fram minnisblað mannvirkjastjóra merkt trúnaðarmál um fund með lóðarhafa fasteignar að Strandgötu 7 á Reyðarfirði lagt fram til kynningar.
-
4. Aðalfundur SSA 2013
Mál 1306105 Allur ferill málsins
Aðalfundar Sambands sveitarfélaga Austurlandi verður haldinn í Fjarðabyggð dagana 13. og 14. september nk. Umræða um fyrirkomulag fundarins.
Bæjarstjóra falið að hefja undirbúning að skipulagi aðalfundarins í samstarfi við SSA.
-
5. Skammtímafjármögnun
Mál 1306100 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fjármálastjóra um heimild til skammtímafjármögnunar í Íslandsbanka til að tryggja lausafjárstöðu yfir framkvæmdamánuði.
Bæjarráð samþykkir að veita heimild til fjármálastjóra til að afla skammtímafjármögnunar til samræmis við minnisblað.
-
6. Fyrirspurnir vegna málefna Raflagna Austurlands og yfirfærslu hlutafjár
Mál 1306093 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað fjármálastjóra vegna fyrirspurnar Ásmundar Ásmundssonar um yfirfærslu hlutafjár Raflagna Austurlands í annað einkahlutafélag.
Fjármálastjóra falið að svara erindi bréfritara á grundvelli minnisblaðs.
-
7. Boð um heimsókn frá Vesteralen, Museum Nord og Vesteralen Cultural Council
Mál 1306104 Allur ferill málsins
Framlagt boð á menningar- og safnaráðstefnu í Versterålen í Noregi í mars 2014.
Bæjarráð samþykkir að senda fulltrúa á menningar- og safnaráðstefnuna. Vísað til starfs- og fjárhagsáætlunar 2014 og atvinnu- og menningarnefndar til umfjöllunar.
-
8. Stækkun heilsugæslustöðvarinnar á Reyðarfirði
Mál 1305026 Allur ferill málsins
Framlögð drög að viljayfirlýsingu Fjarðabyggðar og Heilbrigðisstofnunar Austurlands um stækkun heilsugæslustöðvarinnar á Reyðarfirð.
Bæjarráð fagnar framkomnum hugmyndum frá HSA um stækkun húsnæðis heilsugæslunnar á Reyðarfirði sem miðstöð heilsugæslu í Fjarðabyggð til að mæta m.a. kröfum heimilislækna um bætt vinnuumhverfi. Lögð er áhersla á að þjónustu daglækna skerðist ekki frá því sem nú er í öllum byggðakjörnum. Einnig vill bæjarráð benda á að hægt er að nýta heilsugæslustöðina á Eskifirði sem miðstöð til byrja með þar til ný og stærri heilsugæslustöð verði reist á Reyðarfirði sem kæmi til með að taka við hlutverki miðstöðvar heilsugæslu.
Bæjarstjóra falið að óska eftir breyttu orðalagi eftir óskum bæjarráðs og undirrita viljayfirlýsinguna.
-
9. Hálendisvegur - beiðni um stuðning
Mál 1305106 Allur ferill málsins
Bæjarstjórn vísar máli til frekari umfjöllunar í bæjarráði.
Bæjarráð telur að málið eigi að taka upp á vettvangi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og aðalfundi sem verður í haust.
-
10. Óviðundandi þjónusta ferlimála í Fjarðabyggð
Mál 1306073 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra um stöðu ferðaþjónustumála fatlaðs fólks í Fjarðabyggð.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefndar til umræðu í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlun 2014. Félagsmálastjóra falið að svara bréfriturum.
-
11. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2013
Mál 1305097 Allur ferill málsins
Fundargerð samgöngunefndar SSA nr. 2 frá 10. júní 2013 lögð fram til kynningar.
-
12. Ársfundur Austurbrúar 31.maí 2013
Mál 1305080 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar ársskýrsla og ársreikningur 2012 auk siðareglna og samþykkta um verklagsreglur og fundarsköp stjórnar Austurbrúar.
-
13. Ársfundur Menningarráðs Austurlands
Mál 1304121 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar fundargerð ársfundar Menningarráðs Austurlands.
-
14. Hafnarstjórn - 118
Framlögð til afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 21. júní
Bæjarráð samþykkir fundargerð hafnarstjórnar.