Óviðundandi þjónusta ferlimála í Fjarðabyggð
Mál 1306073 Fyrst á dagskrá 18. júní 2013, síðast 22. ágúst 2013. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 344 liður 8
Bréf tveggja starfsmanna HSA er varðar stöðu mála í ferðaþjónustu fatlaðs fólks í Fjarðabyggð, en bifreið ferðaþjónustunnar hefur verið biluð undanfarnar vikur. Minnisblað félagsmálastjóra frá 14.júní um stöðu mála. Bæjarráð tekur undir áhyggjur bréfritara og felur bæjarstjóra að fara yfir málið og gera bæjarráði grein fyrir stöðu mála á næsta fundi.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 3.8
Fundargerðin „Bæjarráð - 344“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 345 liður 10
Framlagt minnisblað félagsmálastjóra um stöðu ferðaþjónustumála fatlaðs fólks í Fjarðabyggð.
Bæjarráð vísar málinu til félagsmálanefndar til umræðu í tengslum við starfs- og fjárhagsáætlun 2014. Félagsmálastjóra falið að svara bréfriturum.
-
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 9.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 345“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.