Reglur um samskipti trúfélaga og skóla
Mál 1304123 Fyrst á dagskrá 18. júní 2013, síðast 20. júní 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 344 liður 7
Drög að reglum um samskipti trúfélaga og skóla, er byggja á tillögum starfshóps skipuðum af mennta- og menningarmálaráðuneytinu, hafa verið samþykktar af fræðslu- og frístundanefnd og var vísað áfram til bæjarráðs. Í drögunum er alfarið fylgt tillögum starfshópsins. Lagt fram minnisblað fræðslustjóra frá 14.júní. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 21
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir, Esther Ösp Gunnarsdóttir, Elvar Jónsson.
Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum drög að reglum um samskipti trúfélaga og skóla, er byggja á tillögum starfshóps skipuðum af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Hjá situr Borghildur Hlíf Stefánsdóttir.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 3.7
Fundargerðin „Bæjarráð - 344“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.