755 - Deiliskipulag hafnarsvæðis á Stöðvarfirði
Mál 1301223 Fyrst á dagskrá 18. apríl 2013, síðast 20. júní 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: StöðvarfjörðurHafnirSkipulag
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarstjórn, fundur 133 liður 9
Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagstillögunni úr hlaði.
Til máls tóku Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að auglýsa tillögu um að deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð dags. 2. apríl 2013 og nær til svæðis neðan Fjarðarbrautar milli Fjarðabrautar 17 og 50 og felur meðal annars í sér að gert er ráð fyrir lóðum undir smáhýsi, bátaskýli, svæði fyrir smábáta, aðstöðuhúsi við smábátahöfn, göngustígum og áningastöðum ásamt torgi/bílastæðum ofl.
Tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
-
Bæjarstjórn, fundur 137 liður 15
2. varaforseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulagi úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum deiliskipulag hafnarsvæðis á Stöðvarfirði, skipulagsuppdrátt og greinargerð, dags. 8. apríl 2013.
Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.