Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 348

22. júlí 2013, kl. 08:30 til 10:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. 740 - Deiliskipulag vinnubúða og athafnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði

    Mál 1305011 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, tillögu að deiliskipulagi vinnubúða og athafnasvæði vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði til auglýsingar. Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð og felur meðal annars í sér að vinnubúðir og athafnasvæði framkvæmdaaðila er afmarkað á tveimur stöðum. Athafnasvæði verður við gangamunna og vinnubúðir í landi Kirkjubóls. Um er að ræða tímabundna notkun svæðis. Að framkvæmdatíma liðnum verða vinnubúðir og athafnasvæði fjarlægt. Tillaga verður auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs í umboði bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir að tillaga að deiliskipulagi verði auglýst.

  2. 2. Ósk um viðræður vegna eignarhluta Fjarðabyggðar í Sparisjóð Norðfjarðar - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1307033 Allur ferill málsins

    Erindi Sparifélagsins hf. frá 5.júlí lagt fram sem trúnaðarmál. Umræður um málið. Bæjarstjóra falið að ræða við Sparifélagið og leggja málið að því loknu aftur fyrir bæjarráð.

  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 68

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 68 frá 19.júlí samþykkt í umboði bæjarstjórnar.

    1. 3.1 740 - Deiliskipulag vinnubúða og athfnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði