Bæjarráð, fundur 349
30. júlí 2013, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Valdimar O Hermannsson, varamaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 5
Fundargerð bæjarráðs frá 30. júlí til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Beiðni um fyrirframgreiðslu til Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar
Mál 1307054 Allur ferill málsins
Formaður Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar sat þennan lið fundarins og gerði grein fyrir rekstrarstöðu og áætlunum félagsins auk beiðni um fyrirframgreiðslu. Bæjarstjóra falin afgreiðsla málsins.
-
2. Bætur til Golfklúbbs Eskifjarðar vegna framkvæmda við Norðfjarðargöng
Mál 1307041 Allur ferill málsins
Bæjarráð staðfestir samning.
-
3. Fundargerðir stjórnar SSA - 2013
Mál 1301160 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar SSA nr. 8 frá 11. júlí lögð fram til kynningar.
-
4. Gjaldskrár Rafveitu Reyðarfjarðar 2013
Mál 1209046 Allur ferill málsins
Vegna hækkunar Landsvirkjunar á heildsöluverði, frá og með 1.júlí 2013 um 3,3%, er mælt með að smásölugjaldskrá Rafveitu Reyðarfjarðar verði hækkuð um 3,3% frá og með 1.ágúst 2013. Flestar aðrar rafveitur á landinu hafa þegar hækkað gjaldskrár. Bæjarráð samþykkir hækkun.
-
5. Kaup á Fjarðarbraut 53 Stöðvarfirði
Mál 1307063 Allur ferill málsins
Tilboð í húseignina að Fjarðarbraut 53 Stöðvarfirði kr. 600.000. Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ganga frá samningi vegna sölu á húseigninni, með þeim skilyrðum að húsið verði gert upp innan eðlilegs tímafrests.
-
6. Ósk um umsögn varðandi stofnun lögbýlis á Hofi 2
Mál 1307084 Allur ferill málsins
Framlögð beiðni um umsögn vegna fyrirætlana um stofnun lögbýlis að Hofi í Norðfjarðarsveit. Málinu vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar með beiðni um að nefndin veiti umsögn til þar til bærra aðila.
-
7. Hafnarmál á Norðfirði - Stækkun fiskihafnar
Mál 1111028 Allur ferill málsins
Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna vegna verksamnings "Norðfjörður - Dýpkun fiskihafnar og fylling undir garðstæði" sem ráðgert er að undirrita 31. júlí nk. Bæjarráð staðfestir verksamning.
-
8. Smábátahöfn Fáskrúðsfirði - Umhverfisfrágangur
Mál 1211018 Allur ferill málsins
Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna vegna verksamnings "Umhverfi smábátahafnar á Fáskrúðsfirði - jarðvinna og yfirborðsfrágangur". Bæjarráð staðfestir samninginn.
-
9. Tilboð í Hæðargerði 6
Mál 1307039 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt gagntilboð, dagsett 24. júlí 2013, frá Ásu Hinriksdóttur og Þresti L. Hjartarsyni, í eignina Hæðargerði 6 Reyðarfirði, íbúð merkt 01 0102, fastanúmer 217-7217, að fjárhæð 11.400.000 kr. Fasteignamat eignarinnar er 12.650.000 kr. og lóðarmat þar af 1.360.000 kr. Bæjarráð hafnar gagntilboði og vísar málinu til framkvæmdasviðs.
-
10. Lagning 66 kv jarðstrengs í Fáskrúðsfirði og 132 kv jarðstrengs í Reyðarfirði og Eskifirði. Beiðni um umsögn
Mál 1307079 Allur ferill málsins
Frestur til umsagnar, vegna lagningu jarðstrengja í Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Eskifirði, hefur verið veittur til 19.ágúst. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
11. Neskaupstaðarlína 2, jarðstrengur frá Eskifirði til Neskaupstaðar(66/132kv). Beiðni um umsögn.
Mál 1307080 Allur ferill málsins
Frestur til umsagnar, vegna lagningu jarðstrengs frá Eskifirði til Neskaupstaðar, hefur verið veittur til 19.ágúst. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 69
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 69 frá 26.júlí 2013 samþykkt í umboði bæjarstjórnar.