Bæjarráð, fundur 350
12. ágúst 2013, kl. 08:30 til 11:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 138 liður 4
Fundargerð bæjarráðs til umræðu og kynningar.
Til máls tók Eydís Ásbjörnsdóttir
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1305034 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan dagskrárlið fundar.
Framlagt yfirlit yfir rekstur málaflokka Fjarðabyggðar janúar - júní 2013.
-
2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014
Mál 1307059 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri sat þennan dagskrárlið fundar.
Fram lagt til staðfestingar fjárhagsáætlunarferli 2014 og reglur. Farið yfir tímasetningar og tímaáætlun fyrir fjárhagsáætlunarferlið.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlunarferli og reglur ásamt tímasetningum.
-
3. Drög að frumvarpi að bótaákvæði skipulagslaga
Mál 1308009 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins vegna skoðunar á bótaákvæðum skipulagslaga. Óskað er umsagnar sveitarfélaga.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umsagnar og umfjöllunar á framkvæmdasviði.
-
4. Framtíð gömlu Hulduhlíðar 2013
Mál 1302140 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað bæjarritara um stöðu gömlu Hulduhlíðar.
Bæjarráð óskar eftir því að vinnu við tillögur að framtíðarnýtingu Hafnarbrautar 2 og gömlu Hulduhlíðar verði hraðað.
-
5. Gjaldskrá Skipulagðra samgangna 2013
Mál 1209059 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að reglum um niðurgreiðslu ferða fyrir starfsmenn Fjarðabyggðar í og úr vinnu með skipulögðum samgöngum. Lagt er til að umfjöllun fari fram samhliða fjárhagsáætlunargerð 2014.
Vísað til framkvæmdasviðs til umsagnar og umfjöllunar í fjárhagsáætlunargerð 2014.
-
6. Ósk um viðræður vegna eignarhluta Fjarðabyggðar í Sparisjóð Norðfjarðar - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1307033 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.
-
7. Úthlutun byggðakvóta til sjávarbyggða
Mál 1308014 Allur ferill málsins
Bæjarráð gerir ekki formlegar athugasemdir við drög að reglulm. Bæjarráð vill árétta að jafnræðis gæti á milli landsfjórðunga við úthlutun heimildanna.
-
8. Hafnarstjórn - 120
Fram lögð fundargerð hafnarstjórnar nr. 120 frá 8. ágúst 2013 til staðfestingar.