Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 351

19. ágúst 2013, kl. 16:00 til 19:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 138 liður 1

    Til máls tóku:Jón Björn Hákonarson og Páll Björgvin Guðmundsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 19. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014

    Mál 1307059 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat dagskrárliðinn.

    Yfirferð tekjuforsendna og drög að fjárhagsrömmum til umræðu.

  2. 2. Málefni leikskóla Fjarðabyggðar

    Mál 1308039 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sat dagskrárliðinn.

    Fram lagt minnisblað fræðslustjóra. Farið yfir málefni leikskóla í Fjarðabyggð. Leikskólar á Reyðarfirði og Eskifirði eru fullsetnir og ekki hefur náðst að ráða dagforeldra.

    Fræðslustjóra falið að vinna að málinu áfram og auglýsa eftir dagforeldrum. Jafnframt er málinu vísað til kynningar í fræðslu- og frístundanefnd.

  3. 3. Fyrirspurn um hugsanlega leigu eða kaup á hluta af eyðibýlinu Hvalnesi

    Mál 1305008 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að bæjarráð hafni umsókninni og bendir á skipulögð svæði til frístundabúskapar. Einnig leggur nefndin til að skoðaðir verði möguleikar á að skipuleggja sambærileg svæði við Stöðvarfjörð.

    Bæjarráð frestar afstöðu til málsins og óskar upplýsinga um möguleg svæði undir frístundarbúskap við Stöðvarfjörð.

  4. 4. Lagning 66 kv jarðstrengs í Fáskrúðsfirði og 132 kv jarðstrengs í Reyðarfirði og Eskifirði. Beiðni um umsögn

    Mál 1307079 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dagsett 19. júlí 2013 þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á matsskyldu vegna lagningar jarðstrengja á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa og vísar henni til afgreiðslu og umfjöllunar í bæjarráði.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir lagningu 66 kv jarðstrengs í Fáskrúðsfiðri og 132 kv jarðstrengs í Reyðarfirði og Eskifirði.

  5. 5. Neskaupstaðarlína 2, jarðstrengur frá Eskifirði til Neskaupstaðar(66/132kv). Beiðni um umsögn.

    Mál 1307080 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dagsett 19. júlí 2013 þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á matsskyldu vegna lagningar jarðstrengs milli Eskifjarðar og Norðfjarðar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa og vísar henni til afgreiðslu og umfjöllunar í bæjarráði.

    Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir lagningu 66/132 kv jarðstrengs milli Eskifjarðar og Norðfjarðar

  6. 6. Ósk um umsögn varðandi stofnun lögbýlis á Hofi 2

    Mál 1307084 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa um að mælt verði með stofnun lögbýlis á jörðinni og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.

    Bæjarráð samþykkir stofnun lögbýlis á Hofi 2 í Norðfjarðarsveit.

  7. 7. Reglur fyrir leiguíbúðir Fjarðabyggðar

    Mál 1112082 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga, dagsett 9.ágúst 2013, um breytingu á reglum fyrir leiguíbúðir Fjarðabyggðar. Tillagan gerir ráð fyrir einföldun á umsóknarferli fyrir íbúðir Fjarðabyggðar.

    ESU samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar henni til umræðu og afgreiðslu í bæjarráði.

    Bæjarráð samþykkir breyting á reglunum.

  8. 8. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2013

    Mál 1305097 Allur ferill málsins

    Umræða tekin um áherslur í samgöngumálum í fjórðungnum.

  9. 9. Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-2014

    Mál 1210066 Allur ferill málsins

    Líneik Anna Sævarsdóttir hefur sagt sig frá nefndarstörfum í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Aðalheiður Vilbergsdóttir tekur sæti hennar sem aðalmaður. Óskar Þór Guðmundsson verður varamaður í stað Aðalheiðar.

    Hákon Guðröðarson hefur sagt sig frá nefndarstörfum í atvinnu- og menningarnefnd. Tilnefndur verður nýr aðalmaður á næsta bæjarráðsfundi.

  10. 10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 70

    Fundargerðin í heild

    Fram lögð fundargerð eigna-, skipulags, og umhverfisnefndar nr. 70 frá 15. ágúst til staðfestingar.

    Fundargerð staðfest.