Bæjarráð, fundur 352
26. ágúst 2013, kl. 09:00 til 10:30. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 139 liður 1
Fundargerðir bæjarráðst teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 26. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Lántaka vegna endurfjármögnunar skuldbindinga
Mál 1306067 Allur ferill málsins
Fjármálastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir stöðu mála varðandi endurfjármögnun.
-
2. Húsnæði leikskólans Dalborgs á Eskifirði
Mál 1308041 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Foreldrafélagi leikskólans Dalborgar og foreldrum eins árs barna á Eskifirði um dagvistarmál á Eskifirði. Málefnið var á dagskrá bæjarráðs á síðasta fundi og er í vinnslu. Vísað til fræðslustjóra og til umfjöllunar í fræðslu- og frístundanefnd.
-
3. NORA - Experience exchange project
Mál 1307034 Allur ferill málsins
Farið yfir þátttöku Fjarðabyggðar í Nora verkefni með Stavanger og fleiri aðilum. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem hann ásamt bæjarritara sátu með Harald Finnvik vegna verkefnisins. Bæjarráð samþykkir þátttöku í verkefninu. Vísað til hafnarstjórnar til umræðu.
-
4. Tilnefningar í samgöngunefnd og samstarfsnefnd
Mál 1308082 Allur ferill málsins
Samkvæmt samþykkt síðasta aðalfundar SSA þarf að tilnefna í tvær nefndir tvo fulltrúa; karl og konu. Um er að ræða samgöngunefnd og samstarfsnefnd sveitarfélaganna. Tilnefna þarf fyrir 5. september en kosið er í nefndina á aðalfundi SSA. Bæjarráð frestar tilnefningu í nefndir og mun skoða nánar starfsvettvang og hlutverk nefnda fram að næsta fundi.
-
5. Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-2014
Mál 1210066 Allur ferill málsins
Skipun fulltrúa Framsóknarflokks í atvinnu- og menningarnefnd sbr. síðustu fundargerð bæjarráðs. Hákon Guðröðarson hefur sagt sig frá nefndarstörfum í atvinnu- og menningarnefnd. Anton Helgason er tilnefndur sem aðalmaður í atvinnu- og menningarnefnd og Jón Björn Hákonarson sem varamaður.
-
6. Stjórnarfundir StarfA 2013
Mál 1302097 Allur ferill málsins
Framlagðar fundargerðir stjórnarfunda Starfa frá 15.febrúar, 22. apríl, 13. maí og 13. ágúst s.l.
Bæjarritari gerði grein fyrir stöðu Starfa en verið er að stilla upp ársreikningi og gera áætlanir fyrir starfsemina.
-
7. Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 2013
Mál 1305097 Allur ferill málsins
Framlögð 3.fundargerð samgöngunefndar SSA frá 20.ágúst sl.
-
8. Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 2013
Mál 1303083 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 20.ágúst lögð fram.
-
9. Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-2014
Mál 1203050 Allur ferill málsins
Eydís Ásbjörnsdóttir segir sig frá nefndarsetu í fræðslu og frístundarnefnd og við sæti hennar tekur Þorvarður Sigurbjörnsson. Við sæti Þorvarðar sem varamaður í nefndinn tekur Guðrún Veiga Guðmundsdóttir.
Anna Hlíf Árnadóttir hefur sagt sig frá nefndarsetu í félagsmálanefnd sem aðalmaður og við sæti hennar tekur Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.