Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarstjórn

Bæjarstjórn, fundur 139

5. september 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
  • Ævar Ármannsson, varamaður
  • Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Bæjarráð - 352

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðst teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Valdimar O Hermannsson, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 26. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 1.1 Lántaka vegna endurfjármögnunar skuldbindinga1306067
    2. 1.2 Húsnæði leikskólans Dalborgs á Eskifirði1308041
    3. 1.3 NORA - Experience exchange project1307034
    4. 1.4 Tilnefningar í samgöngunefnd og samstarfsnefnd1308082
    5. 1.5 Breytingar á nefndarskipan framsóknarflokks á kjörtímabilinu 2010-20141210066
    6. 1.6 Stjórnarfundir StarfA 20131302097
    7. 1.7 Samgöngunefnd SSA - Fundargerðir 20131305097
    8. 1.8 Fundargerðir Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands 20131303083
    9. 1.9 Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-20141203050
  2. 2. Bæjarráð - 353

    Fundargerðin í heild

    Fundargerðir bæjarráðst teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 2. september staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 2.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20141307059
    2. 2.2 Lögmæti erlendra lána Íslandsbanka hf.1306052
    3. 2.3 Lántaka vegna endurfjármögnunar rekstrarleigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.1308122
    4. 2.4 Breiðablik 20131103057
    5. 2.5 Endurnýjun samnings N4 um sjónvarpsefni1306106
    6. 2.6 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
    7. 2.7 Fræðslu- og frístundastefna2008-03-07-495
    8. 2.8 Málefni leikskóla Fjarðabyggðar1308039
    9. 2.9 Rekstrar- og uppbyggingarsamningar við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu1308090
    10. 2.10 Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði0903071
    11. 2.11 Drög að frumvarpi að bótaákvæði skipulagslaga1308009
    12. 2.12 Fundagerðir 2013 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum1308100
    13. 2.13 Evrópsk lýðræðisvika1308094
    14. 2.14 Breyting á skipan í nefndir Fjarðalistans kjörtímabilið 2010-20141203050
    15. 2.15 Fundargerðir félagsmálanefndar 20131301074
    16. 2.16 Hafnarstjórn - 1211308012F
    17. 2.17 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 711308011F
    18. 2.18 Fræðslu- og frístundanefnd - 421308008F
  3. 3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 71

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 26. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

  4. 4. Hafnarstjórn - 121

    Fundargerðin í heild

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 27. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

    1. 4.1 NORA - Experience exchange project1307034
    2. 4.2 Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu1308005
    3. 4.3 Umsókn um hafnsögumannsskírteini fyrir Árna Bergþór Kjartansson1308019
    4. 4.4 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
    5. 4.5 Plan undir löndunarbúnað á löndunarbryggju á Eskifirði1308089
    6. 4.6 Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs 20141308088
  5. 5. Fræðslu- og frístundanefnd - 42

    Fundargerðin í heild

    Til máls tóku: Óskar Þór Hallgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason.

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 28. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.

  6. 6. Fundargerðir félagsmálanefndar 2013

    Mál 1301074 Allur ferill málsins

    Til máls tóku: Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 45 frá 27. ágúst staðfest með 9 atkvæðum..

  7. 7. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Til máls tók Páll Björgvin Guðmundsson.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir með 9 atkvæðum að nýta kauprétt Fjarðabyggðar að eignum Eignarhaldsfélagsins fasteignar ehf. nánar tiltekið sundlauginni á Eskifirði og slökkvistöðinni á Hrauni, í samræmi við ákvæði 11. gr. leigusamnings frá 24. janúar 2013 milli Fjarðabyggðar og Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf.

  8. 8. Lántaka vegna endurfjármögnunar rekstrarleigusamninga við Eignarhaldsfélagið Fasteign ehf.

    Mál 1308122 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar lagði fram tillögu vegna dagskrárliðar.

    "Með vísan til minnisblaðs fjármálastjóra frá 31.8. 2013 um fjármögnun kaupa á eignum Eignarhaldsfélagsins Fasteignar samþykkir bæjarstjórn Fjarðabyggðar eftirfarandi:

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð allt að 500.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að fjármagna endurkaup eigna sveitarfélagsins frá Fasteign ehf., sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

    Jafnframt er Páli Björgvin Guðmundssyni kt. 150870-4379, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Fjarðabyggðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

    Bæjarstjórn Fjarðabyggðar samþykkir enn fremur að fela fjármálastjóra að ganga til viðræðna við Íslandsbanka hf. um að taka að láni 200 milljónir króna á grundvelli tilboðs bankans frá 21. júní 2013."

    Bæjarstjóri gerði nánari grein fyrir lántökunni.

    Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason.

    Tillaga samþykkt með 9 atkvæðum.

  9. 9. Fjárhagsáætlun 2013 - viðauki 3

    Mál 1309010 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2013 úr hlaði.

    Lagt er til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Eignasjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2013:

    a)

    Leiguskuldir í efnahagsreikningi lækki um kr. 920.000.000 á árinu 2013 og afborganir leiguskulda ársins í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    b)

    Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi hækki um kr. 700.000.000 á árinu 2013 með lánum frá Lánasjóði sveitarfélaga og Íslandsbanka og tekin ný langtímalán í sjóðsstreymisyfirliti hækki um sömu upphæð.

    c)

    Fjármagnsgjöld í rekstrarreikningi hækki um kr. 9.000.000.

    d)

    Viðskiptareikningur Eignasjóðs við Aðalsjóð hækki sem nemur mismuni a) til c) liðar eða um kr. 229.000.000.

    e)

    Handbært fé samstæðu Fjarðabyggðar lækki sem nemur kr. 229.000.000

    Ennfremur er lagt til að eftirfarandi breyting verði samþykkt á fjárhagsáætlun Aðalsjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar fyrir árið 2013:

    a)

    Skuldir við lánastofnanir í efnahagsreikningi lækki um kr. 18.000.000 á árinu 2013 með uppgreiðslu eldri skuldbindinga og liðurinn afborganir lantímalána, hækki um sömu upphæð í sjóðsstreymisyfirliti.

    b)

    Handbært fé Aðalsjóðs og samstæðu Fjarðabyggðar lækki sem nemur kr. 18.000.000.

    Bæjarstjórn samþykkir viðauka 3 með 9 atkvæðum.

  10. 10. Fræðslu- og frístundastefna

    Mál 2008-03-07-495 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Fræðslu- og frístundanefnd hefur lagt til að fræðslu- og frístundastefna verði framlengd um eitt ár. Bæjarráð hefur samþykkt það fyrir sitt leyti. Tillagan um framlengingu er lögð fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fræðslu- og frístundastefna Fjarðabyggðar haldi gildi sínu ári lengur.

  11. 11. Tilnefningar í samgöngunefnd og samstarfsnefnd

    Mál 1308082 Allur ferill málsins

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að fulltrúar Fjarðabyggðar í samgöngunefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi verði Páll Björgvin Guðmundsson og Ásta Krístín Sigurjónsdóttir.

    Að fulltrúar Fjarðabyggðar í samstarfsnefnd Sambands sveitarfélaga á Austurlandi verði Jens Garðar Helgason og Eydís Ásbjörnsdóttir.