Rekstrar- og uppbyggingarsamningar við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu
Mál 1308090 Fyrst á dagskrá 2. september 2013, síðast 20. febrúar 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 353 liður 9
Fyrir liggur minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um rekstrar- og uppbyggingastyrki til íþróttafélaga sem reka eigin íþróttaaðstöðu þar sem lagt er til að gerðir verði samningar við félögin til þriggja til fimm ára. Fræðslu- og frístundanefnd hefur fjallað um málið og vísað því til frekari umræðu í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir að gerðir verði samningar til þriggja ára í tengslum við fjárhagsáætlun 2014.
-
Bæjarstjórn, fundur 139 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 353“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2014
Bæjarráð, fundur 375 liður 11
Þennan lið dagskrár sat fræðslustjóri.
Fræðslu- og frístundanefnd hefur samþykkt drög að samningum til þriggja ára, við þau sjö íþróttafélög sem reka eigin íþróttaaðstöðu. Vísað til bæjarráðs til fullnaðarafgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samningana sem eru til þriggja ára og felur bæjarstjóra undirritun þeirra.
-
Bæjarstjórn, fundur 150 liður 2.11
Fundargerðin „Bæjarráð - 375“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.