Bæjarstjórn, fundur 150
20. febrúar 2014, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
- Guðmundur Þorgrímsson, aðalmaður
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, aðalmaður
- Ævar Ármannsson, varamaður
- Ásta Eggertsdóttir, varamaður
- Stefán Már Guðmundsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 374
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 10. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL1305034
- 1.2 Beiðni um samstarf í innheimtu1402039
- 1.3 Egilsbúð - skemmdir á sviði1402042
- 1.4 Endurskoðun á samþykktum SSA frá aðalfundi 20131402041
- 1.5 Frumvarp til laga um lögreglulög1402043
- 1.6 Frumvarp til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.1402068
- 1.7 Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi1309129
- 1.8 Uppsetning kjörskrár og skráning kjördeilda1402035
- 1.9 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20141402024
-
2. Bæjarráð - 375
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 17. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Kynning á vinnu við eflingu millilandaflugs um Egilsstaðaflugvöll1402008
- 2.2 Ósk um kaup á Naustahvammi 52 Norðfirði1402001
- 2.3 730 Fagradalsbraut 2 - umsókn um byggingarlóð1402060
- 2.4 Málefni Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði - Troðari1402112
- 2.5 Beiðni um styrk fyrir endurhæfingahópa á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað1402088
- 2.6 Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti árið 20141401249
- 2.7 Sala íbúða í eigu Fjarðabyggðar1402003
- 2.8 Tilkynning um breytingu á regluverði1208009
- 2.9 Umsókn að rammasamningum Ríkiskaupa 20141402110
- 2.10 Ferðaþjónusta fatlaðs fólks 20141402111
- 2.11 Rekstrar- og uppbyggingarsamningar við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu1308090
- 2.12 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20141402090
- 2.13 Hafnarstjórn - 1271402004F
- 2.14 Fræðslu- og frístundanefnd - 491402006F
- 2.15 Atvinnu- og menningarnefnd - 541401016F
- 2.16 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 861402007F
-
3. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 86
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson, Ásta Eggertsdóttir, Jón Björn Hákonarson, Valdimar O Hermannsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 13. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Atvinnu- og menningarnefnd - 54
Til máls tóku: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Ævar Ármannsson, Guðmundur Þorgrímsson, Jón Björn Hákonarson, Ásta Eggertsdóttir, Sævar Guðjónsson.
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 13. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
-
5. Fræðslu- og frístundanefnd - 49
Til máls tóku: Sævar Guðjónsson.
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 12. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
-
6. Hafnarstjórn - 127
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 11. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Rekstur safna og tjaldsvæða sumarið 20141401117
- 6.2 Fundagerðir Hafnasamband Íslands árið 20141401229
- 6.3 Fundargerðir CI á árinu 20141401230
- 6.4 Aðalfundur Cruise Iceland á Ísafirði 23. maí 20141402067
- 6.5 Hafnar- og vistifjardabyggd vefur1402073
- 6.6 Undanþága frá hafnsöguskyldu1402028
- 6.7 Tilnefning í fagráð um hafnamál1401168
- 6.8 Skoðun aðalskipulagsmála vegna hafnar og iðnaðarsvæða1304098
- 6.9 Gjaldskrá Fjarðabyggðahafna1401190
- 6.10 Mjóifjörður - Endurnýjun þekju1402032
- 6.11 Endurbygging á Sæbergsbryggju á Eskifirði1402030
- 6.12 Hafnamál Mjóeyrarhöfn1401247
- 6.13 Norðfjörður - Löndunaraðstaða smábáta1301313
- 6.14 Norðfjörður - Netagerðarbryggja viðgerð skolun undan landvegg1402054
-
7. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2014
Mál 1402090 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 40 frá 11. febrúar lögð fram til staðfestingar.
Til máls tóku: Ásta Eggertsdóttir, Jens Garðar Helgason.
Fundargerð staðfest með 9 atkvæðum.
-
8. 730 - br. á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 vegna br. á landnotkun við Eyri í Reyðarfirði
Mál 1401245 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi skipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að láta breyta Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, dreyfbýlisuppdrætti, vegna fyrirhugaðrar hafnar- og iðnaðarstarfsemi í landi Eyrar í Reyðarfirði. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn með 9 atkvæðum framlagða skipulags- og matslýsingu vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga.
-
9. 740 - br. á deiliskipulagi vinnubúða og athafnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði
Mál 1402064 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi breytingum á deiliskipulaginu úr hlaði.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum óverulegar breytingar á deiliskipulagi, vinnubúða og athafnarsvæðis vegna Norðfjarðarganga í Norðfirði ásamt skipulagsuppdrætti og greinargerð, dags. 17. febrúar 2014 þannig að gert sé ráð fyrir steypistöð innan marka vinnubúðasvæðis.
Málsmeðferð er með breytinguna sem óverulega breytingu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-
10. Reglur um söla íbúða í eigu Fjarðabyggðar
Mál 1402003 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði.
Um er að ræða breytingu á gildandi reglur um sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar.
Enginn tók til máls.
Reglur um sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar staðfestar með 9 atkvæðum.
-
11. Tilkynning um breytingu á regluverði
Mál 1208009 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.
Bæjarráð vísaði til staðfestingar bæjarstjórnar skipun staðgengils regluvarðar. Lagt er til að Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu verði staðgengill regluvarðar gagnvart Kauphöll.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir tillögu bæjarráðs með 9 atkvæðum.
-
12. Fjárhagsáætlun 2014 - viðauki 4
Mál 1402122 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðauka úr hlaði. Viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar fyrir árið 2014 fjallar um viðhaldskostnað í Tækjamiðstöð.
a) Lagt er til að ráðast verði í viðgerð á snjótroðara í Oddsskarði sbr mál nr. 1402112. Gerð verði breyting á rekstrarkostnaði Tækjamiðstöðvar á árinu 2014 fyrir deild 101 Snjótroðari PB-300 þannig að viðhald ársins hækki um kr. 7.700.000 og verði samtals kr. 9.760.000.
b) Lagt er til að keyptur verði nýr bíll til ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk sbr mál nr. 1402111. Í fjárhagsáætlun ársins 2014 er gert ráð fyrir 10 milljónum króna til kaupa á nýjum bíl. Samkvæmt fyrirliggjandi tilboðum kostar slíkur bíll 15 milljónir króna tilbúinn og með viðeigandi búnaði uppsettum. Gerð verði breyting á fjárfestingum Tækjamiðstöðvar á árinu 2014 þannig að eignfærð fjárfesting ársins 2014 hækki um kr. 5.000.000 og verði samtals kr. 26.500.000.
Fjármögnun fjárfestingar og aukins rekstrarkostnaðar verði með eigin fé Tækjamiðstöðvarinnar og skuld hennar á viðskiptareikningi mun hækka sem því nemur við aðalsjóð en handbært fé Aðalsjóðs lækkar um sömu upphæð og verða áætlað kr. 404.954.000 í árslok 2014.
Enginn tók til máls:
Viðauki 4 samþykktur með 9 atkvæðum.