Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Málefni Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði - Troðari

Mál 1402112 Fyrst á dagskrá 17. febrúar 2014, síðast 20. febrúar 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 375 liður 4

    Þennan lið dagskrár sat mannvirkjastjóri.

    Minnisblað mannvirkjastjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa er varðar viðhaldsmál á snjótroðara í Oddsskarði.

    Bæjarráð samþykkir tillögu sem er lögð fram um viðhald á troðaranum. Kostnaður er allt að 9 milljónum kr. við viðgerð og endurnýjun belta sbr minnisblaðið. Viðauki verður fram lagður á næsta fundi bæjarstjórnar með nákvæmri kostnaðargreining. Fjármálastjóra falið að útfæra viðauka á þessum forsendum og fjármögnun verði með lækkun á handbæru fé í Aðalsjóði.

  2. Bæjarstjórn, fundur 150 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 375“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is