Bæjarráð, fundur 374
10. febrúar 2014, kl. 08:30 til 11:30, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 150 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Valdimar O Hermannsson, Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.
Fundargerð bæjarráðs frá 10. febrúar staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Rekstur málaflokka 2013 - TRÚNAÐARMÁL
Mál 1305034 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lagt fram yfirlit um rekstur málaflokka og stofnana ásamt sundurliðun launakostnaðar, skatttekna og fjárfestingarverkefna, 12 mánuði 2013. Yfirlit lagt fram sem trúnaðarmál.
-
2. Beiðni um samstarf í innheimtu
Mál 1402039 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Innkasso um innheimtumál.
Vísað til kynningar hjá fjármálastjóra.
-
3. Egilsbúð - skemmdir á sviði
Mál 1402042 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Guðmundar Rafnkels Gíslasonar vegna sviðs í Egilsbúð.
Erindi vísað til framkvæmdasviðs og því falið að svara erindi Guðmundar og skoða lausnir á málinu til framtíðar en bæjarráð vill nota tækifærið og fagnar auknu leiklistar- og tónlistarhaldi í Egilsbúð í Neskaupstað.
-
4. Endurskoðun á samþykktum SSA frá aðalfundi 2013
Mál 1402041 Allur ferill málsins
Fram lögð drög að tillögu og gögn vegna endurskoðunar samþykkta Sambands sveitarfélaga Austurlandi.
Vísað til skoðunar hjá stjórnsýslu- og þjónustusviði sem greini áhrif tillögunnar. Málið verður tekið fyrir að nýju í bæjarráði þegar greinargerð sviðsins liggur fyrir.
-
5. Frumvarp til laga um lögreglulög
Mál 1402043 Allur ferill málsins
Til umræðu frumvarp til laga um breytingu á lögreglulögum (fækkun umdæma o.fl.) 251. mál.
Vísað til umræðu í bæjarstjórn.
-
6. Frumvarp til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.
Mál 1402068 Allur ferill málsins
Til umræðu frumvarp til laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkis í héraði (sýslumannsembætti) 250. mál.
Vísað til umræðu í bæjarstjórn.
-
7. Sameiginleg markaðssetning skíðasvæðanna á Austurlandi
Mál 1309129 Allur ferill málsins
Þennan lið dagskrár sat markaðs- og upplýsingafulltrúi.
Lögð fram tillaga um samstarf um sameiginlegan skíðapassi fyrir ferðaþjónustuaðila fyrir bæði skíðasvæðin Oddsskarð og Stafdal. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti samstarf um markaðssetningu og sameiginlegan skíðapassa.
-
8. Uppsetning kjörskrár og skráning kjördeilda
Mál 1402035 Allur ferill málsins
Fram lagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þjóðskrár þar sem kynnt er breytt verklag við uppsetningu á kjörskrá og skráningu í kjördeildir.
Vísað til bæjarritara til skoðunar.
-
9. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2014
Mál 1402024 Allur ferill málsins
Fram lögð fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 812 frá 31. janúar s.l.