Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 373

3. febrúar 2014, kl. 08:30 til 12:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jens Garðar Helgason, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 149 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Liður 2 í fundargerð er tekinn til sérstakrar atkvæðagreiðslu. Sævar Guðjónsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu.

    Liðurinn er samþykktur með 8 atkvæðum.

    Fundargerð bæjarráðs frá 3. febrúar að undanskildum lið 2 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Kaupvangur - beiðni um styrk vegna endurgerðar hússins

    Mál 1311094 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni um styrk vegna endurgerðar Kaupvangs að Hafnargötu 15 á Fáskrúðsfirði. Jafnframt lagt fram minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa. Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni og felur fjármálasviði að ganga frá styrk m.v. fyrirliggjandi reglur.

  2. 2. 735 Strandgata 120 - byggingarleyfi - smáhýsi

    Mál 1401189 Allur ferill málsins

    Ferðaþjónustan á Móeyri hefur sótt um að byggja sex smáhýsi á Mjóeyri ásamt því að stækka lóð um 1.844 m2.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt umsóknina fyrir sitt leyti. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar og byggingu smáhýsa.

  3. 3. Húsnæðismál Tónskóla Neskaupstaðar

    Mál 1311161 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað eigna- og framkvæmdafulltrúa vegna beiðni um aukafjárveitingu vegna framkvæmda við húsnæði Tónskóla Neskaupstaðar. Bæjarráð felur fjármálastjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna framkvæmdanna. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  4. 4. Kaup á fasteigninni að Túngötu 13 Eskifirði

    Mál 1306060 Allur ferill málsins

    Framlögð matsgerð og kaupsamningur vegna uppkaupa á fasteigninni að Túngötu 13 á Eskifirði vegna ofanflóðavarna en fasteignin er á skilgreindu hættu/framkvæmdasvæði við Lambeyrará. Ofanflóðasjóður greiðir 90% kaupverðs. Bæjarráð staðfestir kaupverð kr. 22.500.000 og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.

  5. 5. Atvinnumál á Stöðvarfirði

    Mál 1401116 Allur ferill málsins

    Upplýsingar um íbúafund sem haldinn verður á Stöðvarfirði miðvikudaginn 5.febrúar kl. 17:30. Á dagskrá fundarins er kynning á hugmyndum um Þokusetur auk þess sem rætt verður um atvinnumál á Stöðvarfirði. Fulltrúar Austurbrúar og Fjarðabyggðar verða á fundinum.

  6. 6. Rammasamningur vegna kaupa á tölvubúnaði

    Mál 1401282 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarritara þar sem lagt er til að Fjarðabyggð semji við IBM Danmark um fjármögnun á tölvubúnaði fyrir 600.000 DKK til þriggja ára. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði en gert er ráð fyrir útgjöldum í fjárhagsáætlun 2014.

  7. 7. Krafa slökkviliðsmanna um greiðslu vangoldin launa

    Mál 1306112 Allur ferill málsins

    Gerð grein fyrir stefnu á hendur sveitarfélaginu vegna greiðslu sérstaks þrekálags til slökkviliðsmanna.

  8. 8. Spurningar til bæjarráðs um ýmis mál

    Mál 1401126 Allur ferill málsins

    Lagt fram svar bæjarritara vegna svara við fyrirspurnum Ásmundar Ásmundssonar í sjö liðum. Bæjarritara falið að svara bréfritara.

  9. 9. Stefna vegna jarðarinnar Stuðla

    Mál 1401250 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar stefna landeigenda Stuðla vegna landamerkja jarðarinnar og Sléttu. Fjarðabyggð á ekki beina aðild að málinu. Vísað til vinnslu hjá forstöðumanni stjórnsýslu og til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  10. 10. Svínaskálahlíð - hitaveituvatn

    Mál 1401274 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Öglu Hauksdóttur vegna hitaveitu á Eskifirði. Framkvæmdasviði falið að finna úrlausn á málinu og því vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  11. 11. Kynningarfundur EBÍ 2014

    Mál 1401242 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir kynningarfundi um starfsemi Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands.

  12. 12. Tilraunaverkefni um rafrænar íbúakosningar

    Mál 1401251 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um tilraunaverkefni vegna rafrænna íbúakosninga. Þjóðskrá Íslands mun halda sérstakan kynningarfund fyrir sveitarfélögin 5. febrúar nk. kl 13:30 og verður bein útsending af fundinum.

  13. 13. Sala íbúða í eigu Fjarðabyggðar

    Mál 1402003 Allur ferill málsins

    Umræða um reglur varðandi sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar. Máli vísað til framkvæmdasviðs og eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.

  14. 14. Málefni Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Fjarðabyggð

    Mál 1303138 Allur ferill málsins

    Kristín Björg Albertsdóttir forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands sat þennan lið fundarins. Kristín gerði m.a. grein fyrir fjárlögum heilbrigðisstofnunar fyrir árið 2014, ræddi uppsafnaðan halla síðastu ára og helstu aðgerðir til að takast á við rekstrarvanda stofnunarinnar.

  15. 15. Sumarlokun leikskólanna í Fjarðabyggð sumarið 2014

    Mál 1401138 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fræðslustjóri. Rætt um fyrirkomulag sumarlokunar á leikskólum Fjarðabyggðar sumarið 2014. Bæjarráð er sammála um að sumarlokun taki mið af starfsáætlun 2014 en þar er horft til hagsmuna stærri fyrirtækja sem sækja vinnuafl til fleiri en eins bæjarhluta.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 85

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 85 frá 27. janúar lögð fram til kynningar.