Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Kaupvangur - beiðni um styrk vegna endurgerðar hússins

Mál 1311094 Fyrst á dagskrá 2. desember 2013, síðast 6. febrúar 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 366 liður 3

    Ósk um niðurfellingu á fasteignagjöldum vegna endurgerðar Kaupvangs við Hafnargötu 15 á Fáskrúðsfirði.

    Bæjarráð fagnar framtaki og metnaði við að byggja húsið upp. Á þessum tíma liggja ekki fyrir reglur um styrkveitingar vegna endurgerðar gamalla húsa.

    Bæjarráð felur fjármálastjóra að skoða gerð reglna og endurskoða fyrirliggjandi reglur um styrki vegna endurgerðar húsa og verður erindið tekið upp að nýju þegar niðurstaða liggur fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 145 liður 1.3

    Fundargerðin „Bæjarráð - 366“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. 2014

    Bæjarráð, fundur 373 liður 1

    Framlögð beiðni um styrk vegna endurgerðar Kaupvangs að Hafnargötu 15 á Fáskrúðsfirði. Jafnframt lagt fram minnisblað frá skipulags- og byggingarfulltrúa. Bæjarráð samþykkir styrkbeiðni og felur fjármálasviði að ganga frá styrk m.v. fyrirliggjandi reglur.

  4. Bæjarstjórn, fundur 149 liður 2.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 373“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is