Bæjarstjórn, fundur 145
5. desember 2013, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (11)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, aðalmaður
- Elvar Jónsson, aðalmaður
- Eiður Ragnarsson, aðalmaður
- Ásta Eggertsdóttir, varamaður
- Stefán Már Guðmundsson, aðalmaður
- Borghildur Hlíf Stefánsdóttir, varamaður
- Óskar Þór Hallgrímsson, varamaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
- Benedikt Jóhannsson, varamaður
Dagskrá
-
1. Bæjarráð - 366
Fundargerðin lögð fram til afgreiðslu.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Páll Björgvin Guðmundsson, Stefán Már Guðmundsson, Elvar Jónsson, Óskar Þór Hallgrímsson,
Fundargerð bæjarráðs frá 2. desember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.
- 1.1 Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2013/20141309097
- 1.2 Kaup á Fjarðarbraut 53 Stöðvarfirði1307063
- 1.3 Kaupvangur - beiðni um styrk vegna endurgerðar hússins1311094
- 1.4 Mótmæli gegn niðurskurði heilsugæslu á Fáskrúðsfirði1311184
- 1.5 Fjölskyldumeðferð SÁÁ - Helgarnámskeið í Fjarðabyggð1311169
- 1.6 740 Naustahvammur 60 - umsókn um lóð1311124
- 1.7 Fyrirspurn um hugsanlega leigu eða kaup á hluta af eyðibýlinu Hvalnesi1305008
- 1.8 Bókun frá bæjarstjórn Seyðisfjarðarkaupstað um ferjusiglingar - Smyril line1311180
- 1.9 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld1310175
- 1.10 Til athugunar varðandi álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 20141311187
- 1.11 Bréf frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga(EFS)til endurskoðenda sveitarfélaga1311186
- 1.12 Fjármál sveitarfélaga, Fjárhagsleg viðmið og upplýsingar um fjármál sveitarfélaga1310198
- 1.13 Mögulegt ólögmæti lána LS frá 20061207007
- 1.14 Aðlögunaráætlun 2013-2023 og Fjárhagsáætlun 2014-20171311194
- 1.15 Reikningagerð veitufyrirtækja1306005
- 1.16 Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 20131301338
- 1.17 Fundagerðir 2013 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum1308100
- 1.18 152.mál til umsagnar - um breytingu á sveitarstjórnarlögum1311097
- 1.19 159.mál til umsagnar - um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði (heildarlög)1311099
- 1.20 160.mál til umsagnar - um lífsýnasöfn (söfn heilbrigðisupplýsinga og leitargrunnar)1311100
- 1.21 167.mál til umsagnar - um náttúruvernd (brottfall laganna)1311174
- 1.22 186.mál til umsagnartil - um barnaverndarlög (rekstur heimila fyrir börn)1311175
- 1.23 Breytingar á nefndarskipan sjálfstæðisflokks á kjörtímabilinu 2010-20141204061
- 1.24 Fundargerðir barnaverndarnefndar 20131301075
- 1.25 Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 811311018F
-
2. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 81
Fundargerðir eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar tekin til afgreiðslu.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eiður Ragnarsson, Ásta Eggertsdóttir, Elvar Jónsson, Stefán Már Guðmundsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Óskar Þór Hallgrímsson.
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá 18. nóvember samþykkt með 9 atkvæðum.
-
3. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2013
Mál 1301075 Allur ferill málsins
Fundargerðin lögð fram til afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 39 frá 19.11. staðfest með 9 atkvæðum.
-
4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld
Mál 1310175 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum úr hlaði.
Lögð fram til umræðu tillaga fjármálastjóra að reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2014.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
-
5. Álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014
Mál 1311187 Allur ferill málsins
Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu úr hlaði vegna útsvarsálagningar á árinu 2014.
"Bæjarstjórn samþykkir, með fyrirvara um að lögum nr. 4/1945 um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt á Alþingi fyrir 31. desember, að útsvar á árinu 2014 skuli nema 14,52%. Gangi fyrirhugaðar lagabreytingar ekki í gegn stendur fyrri ákvörðun bæjarstjórnar frá 144. fundi um að útsvar skuli á árinu 2014 nema 14,48% af tekjum."
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillöguna.
-
6. Umferðaröryggi við leik- og grunnskóla og íþróttamannvirki
Mál 1311091 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri lagði fram tillögu um umferðaöryggismál.
"Lagt er til að sveitarfélagið hafi forgöngu um aðgerðir sem miða að bættri umferðarmenningu í Fjarðabyggð, með áherslu á akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur í grennd við skóla, leikvelli og íþróttahús.
Greinargerð
Settur verði á fót samráðshópur sem í sitji bæjarstjóri og fræðslustjóri, fyrir hönd sveitarfélagsins, fulltrúi frá lögreglu og formenn foreldrafélaga grunnskólanna.
Samráðshópnum er ætlað að stuðla að aukinni umræðu um umferðaröryggismál barna og ungmenna í bæjarkjörnum sveitarfélagsins, sem nýst getur m.a. við yfirstandandi endurskoðun á umferðarsamþykkt sveitarfélagsins. Hópurinn vinni einnig að aðgerðum sem miða að bættri umferðamenningu í samstarfi foreldra, lögreglu og fræðsluyfirvalda í Fjarðabyggð."
Til máls tóku: Elvar Jónsson, Ásta Eggertsdóttir, Stefán Már Guðmundsson, Jón Björn Hákonarson.
Tillagan er samþykkt með 9 atkvæðum.