Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014

Mál 1311187 Fyrst á dagskrá 2. desember 2013, síðast 5. desember 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 366 liður 10

    Til athugunar varðandi álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Fram lögð tilkynning um væntanlega breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og hámarksútsvari á árinu 2014. Einnig lagður fram tölvupóstur framkvæmdastjóra sambandsins er varðar sama efni.

    Bæjarráð samþykkir að endanlegt útsvarshlutfall verði 14,52% með fyrirvara um að frumvarp um hækkun hámarksútsvars sem er í umfjöllun Alþingis verði að lögum. Um er að ræða tilfærslu skatthlutfalls milli ríkis og sveitarfélaga en ekki beina hækkun á skatthlutfalli. Vísað til bæjarstjórnar til endanlegrar staðfestingar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 145 liður 5

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi tillögu úr hlaði vegna útsvarsálagningar á árinu 2014.

    "Bæjarstjórn samþykkir, með fyrirvara um að lögum nr. 4/1945 um tekjustofna sveitarfélaga verði breytt á Alþingi fyrir 31. desember, að útsvar á árinu 2014 skuli nema 14,52%. Gangi fyrirhugaðar lagabreytingar ekki í gegn stendur fyrri ákvörðun bæjarstjórnar frá 144. fundi um að útsvar skuli á árinu 2014 nema 14,48% af tekjum."

    Enginn tók til máls.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillöguna.

  3. Bæjarstjórn, fundur 145 liður 1.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 366“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Til athugunar varðandi álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2014

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is