Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2014 - fasteignagjöld
Mál 1310175 Fyrst á dagskrá 18. nóvember 2013, síðast 5. desember 2013. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Í hnotskurn
Málið fjallar um álagningu fasteignagjalda í Fjarðabyggð árið 2014 og reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti fyrir elli- og örorkulífeyrisþega, þar sem hámarksafsláttur er 53.541 kr.1 Bæjarstjórn samþykkti gjöldin 21. nóvember 2013 og reglurnar um afsláttinn 5. desember 2013.25
Staðan
Álagningarstofnar fasteignagjalda 2014 og reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega hafa verið samþykkt í bæjarstjórn.25
Gervigreind skrifaði þetta yfirlit upp úr fundargerðum og upptökum. Hver tala vísar í færslu í ferlinum hér fyrir neðan. Þar er heimildin sjálf. Svona er yfirlitið unnið.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 365 liður 16
Bæjarráð samþykkti tillögu um álagningarstofna fasteignagjalda 2014, meðal annars fasteignaskatt A 0,45 %, B 1,32 % og C 1,55 %, sorphreinsunargjald 21.700 kr. og sorpeyðingargjald 10.300 kr. á heimili, ásamt reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega, og vísaði henni til bæjarstjórnar.
Endursögn gervigreindar
Fyrir liggur tillaga um álagningarstofna fasteignagjalda 2014 og reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
Fasteignagjöld ársins 2014 verði sem hér segir:
Fasteignaskattur A verði 0,45 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur C verði 1,55 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald verði 0,31 % af húsmati.
Lesa alla bókunina (131 orð til viðbótar)
Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald verði 21.700 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald verði 10.300 kr.á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Jafnframt er lagt til að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:
a)Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2014.
b)Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2013 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2014 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.
Einstaklingar:
Brúttótekjur allt að kr. 2.579.465 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir 3.411.282 - 0 % afsláttur
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Brúttótekjur allt að kr. 3.917.878 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir 4.682.550 - 0 % afsláttur
Bæjarráð samþykkir tillögu og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 4
Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir tillögunni, Jens Garðar Helgason tók til máls og bæjarstjórn samþykkti álagningarstofnana og afsláttinn samhljóða með 9 atkvæðum.3
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar gerði grein fyrir álagningarstofnum fasteignagjalda 2014 og afslætti af fasteignaskatti elli- og örorkulíferisþega.
Til máls tók Jens Garðar Helgason.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 9 atkvæðum að fasteignagjöld ársins 2014 verði sem hér segir:
Fasteignaskattur A verði 0,45 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur B verði 1,32 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Fasteignaskattur C verði 1,55 % af húsmati og lóðarhlutamati.
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,53 % af lóðarhlutamati.
Lesa alla bókunina (139 orð til viðbótar)
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 2,00% af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald verði 0,31 % af húsmati.
Holræsagjald verði 0,32 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald verði 21.700 kr. á heimili.
Sorpeyðingargjald verði 10.300 kr.á heimili.
Fjöldi gjalddaga verði átta - mánaðarlega frá 1. febrúar.
Eindagi fasteignagjalda verður síðasti virki dagur gjalddagamánaðar.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn samhljóða með 9 atkvæðum að afsláttur á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega verði sem hér segir:
a)Hámarks afsláttur af fasteignaskatti fylgi breytingum fasteignamatsstofns og verði kr. 53.541 á árinu 2014.
b)Afsláttur fasteignaskatts er tekjutengdur og miðast við árstekjur ársins 2013 samanber álagningu skattstjóra á árinu 2014 og skulu tekjumörk vera sem hér segir:.
Einstaklingar:
Brúttótekjur allt að kr. 2.579.465 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 3.411.282 - 0 % afsláttur
Hjón og samskattað sambýlisfólk:
Brúttótekjur allt að kr. 3.917.878 - 100 % afsláttur
Brúttótekjur yfir kr. 4.682.550 - 0 % afsláttur
-
Bæjarstjórn, fundur 144 liður 8.16
Fundargerðin „Bæjarráð - 365“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 366 liður 9
Fjármálastjóri sat liðinn og bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti tillögu fjármálastjóra að reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega 2014 og vísaði þeim til bæjarstjórnar.
Endursögn gervigreindar
Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.
Lögð fram til umræðu tillaga fjármálastjóra að reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2014.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti reglurnar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
Bæjarstjórn, fundur 145 liður 4
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglunum úr hlaði, Eiður Ragnarsson tók til máls og bæjarstjórn samþykkti reglurnar með 9 atkvæðum.6
Endursögn gervigreindar
Forseti bæjarstjórnar fylgdi reglum úr hlaði.
Lögð fram til umræðu tillaga fjármálastjóra að reglum um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2014.
Til máls tóku: Eiður Ragnarsson,
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum reglur um afslátt af fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.
-
Bæjarstjórn, fundur 145 liður 1.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 366“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.